BlazRoca og Egill Ólafs frumsýna nýtt myndband: „Sexy sviti og tveir rosalega vanir menn“ Elma Rut Valtýsdóttir skrifar 25. febrúar 2022 12:00 Tónlistarmennirnir BlazRoca og Egill Ólafsson koma saman í laginu Slaki Babarinn. Tónlistarmennirnir Erpur Eyvindarson, betur þekktur sem BlazRoca, og Egill Ólafsson leiða saman hesta sína í laginu Slaki Babarinn. Um er að ræða fyrsta lag Erps í um fimm ár. Laginu fylgir tónlistarmyndband fullt af testósteróni sem frumsýnt er hér á Vísi. „
Þetta er bara þegar maður fer í Babar-gírinn. Babar er alveg geggjaður fíll. Hann kemur frá Afríku og er búinn að vera í fullri vinnu við að kóngsast. Svo eignast hann bara sykurmömmu í París og hann fer bara úr húddinu og til Parísar. Þar er hann bara á blæjubíl með sykurmömmunni að þeysast um París með kórónu,“ segir Erpur um innblástur lagsins. Lagið var í mótun í nokkur ár en listamenn á borð við Nicholas Kvaran og Guli Drekinn komu að þróun lagsins. „Síðan gerist það að við Kiddi Hjálmur förum bara inn í stúdíó og byrjuðum bara að leika okkur. Það er svo gaman að leika við þá því það er allt svo lífrænt og mótast bara í upptökunni. Hann hóaði í alls konar mannskap og lagið var bara unnið jafnóðum.“ „Þetta er bara þegar maður fer í Babar-gírinn. Babar er alveg geggjaður fíll. Hann kemur frá Afríku og er búinn að vera í fullri vinnu við að kóngsast. Svo eignast hann bara sykurmömmu í París og hann fer bara úr húddinu og til Parísar. Þar er hann bara á blæjubíl með sykurmömmunni að þeysast um París með kórónu,“ segir Erpur um innblástur lagsins. Mikil þróunarvinna á bak við svona samstarf Það hafði verið draumur Erps að vinna með Agli Ólafssyni í mörg ár en hann segist hafa verið að bíða eftir rétta tímapunktinum. „Egill Ólafsson er náttúrlega bara kóngsi. Þetta er bara yfirburðamaður. Þetta er bara ískaldasti dúddinn í bransanum, þannig þegar hann var kominn inn í þetta þá varð þetta náttúrlega bara algjör sturlun.“ Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Erpur gefur út lag með tónlistarmanni úr annarri senu. Hann gaf út lagið Allir fá sér með Ragga Bjarna fyrir nokkrum árum og er það eitt af hans vinsælustu lögum. „Mér finnst ekkert glataðra en eitthvað svona samstarf þar sem er bara verið að henda mönnum inn og það er ekki búið að þróa hugmyndina. Það þarf svolitla vinnu til þess að sameina báða aðila í einhverja heild. Þetta er alveg eins og með Ragga Bjarna, sú hugmynd var mjög gömul. Ég var búinn að tala við Ragga Bjarna löngu áður, en það var ekki fyrr en ég var búinn að móta eitthvað sem myndi gera mig og Ragga Bjarna að heild - og það var eins með Egil.“ Erpur segir það hafa verið gamlan draum að fá að vinna með Agli. „Tveir rosalega vanir menn, veistu hvað ég meina?“ Það er óhætt að segja að myndbandið sé frumlegt. Erpur segir myndbandið hafa átt að vera einfalt en skemmtilegt og endurspegla það þegar menn detta í Babar-gírinn og það er komin helgi. Þess má geta að í myndbandinu er að finna sérstakan Babar-dans saminn af Brynju Péturs. „Þetta er svona rosa mikið tveir gaurar í saunu að glussa í sig einum eða tveimur og fara yfir málin. Það er smá sviti þarna, ekki svitafýla heldur bara sexy sviti sem er notaður í ilmvötn. Þetta eru svona tveir rosalega vanir menn, veistu hvað ég meina? Það er svona vibe-ið í þessu.“ Erpur leikstýrði myndbandinu sjálfur, ásamt Kristófer Þór Péturssyni. Hann segir þetta aðeins byrjunina af því sem koma skal. „Ég er í miklu stuði og það er kominn svona fjörfiskur í okkur. Nú er loksins þetta Covid kjaftæði að taka enda. Rottweiler er náttúrlega búin að vera fresta afmælistónleikunum sínum en núna getum við farið að djöflast aftur. Þannig það er rosalega hressandi tími í vændum.“ Klippa: BlazRoca og Egill Ólafsson - Slaki Babarinn
Tónlist Mest lesið Þjóðhátíð um raunveruleikaþátt Brynjars: „Það er ekkert í boði“ Lífið Fékk sér Stöð 2 húðflúr í beinni útsendingu Lífið Söfnuðu milljón krónum fyrir ungt fólk með krabbamein Lífið „Ekkert gengið að casha út á pabba“ Menning Vala Kristín og Hilmir Snær búin að eiga Lífið Vann gullverðlaun fyrir sykurblómaskreytingu Lífið Laufey Lín og Barbra Streisand leiða saman hesta sína Lífið Selur íbúð með náttúruparadís í bakgarðinum Lífið Hélt við konu besta vinar síns Lífið Stuð og stemning á „árshátíð íslenskra þungarokkara“ í Stykkishólmi Lífið Fleiri fréttir Heldur sér við efnið og burt frá efnunum Þykja skuggalega lík Fleetwood Mac „Okkur var ekkert cancelað, nema hann bara gerði það sjálfur“ Heitustu rapparar landsins í eina sæng Sigur Rós í Handmaids Tale Einn heitasti plötusnúður í heimi á leið til landsins Nauðsynlegt að gera upp fortíðina Frumflutti „Hver er sá besti“ í Fíladelfíu árið 1985 Kærleiksbomba frá GusGus Nýtt lag frá VÆB-bræðrum: „Bíðið bara, það verður epic!“ „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Sjá meira