Sólborg sá um Instagram reikninginn Fávitar á árunum 2016-2020, sem var átak gegn stafrænu og annars konar kynferðisofbeldi. Blaðamaður heyrði í Sólborgu varðandi þessa nýju þáttaröð sem hún segir að sé ætluð öllum kynslóðum.
1. Hvernig fæddist hugmyndin að þessum sjónvarpsþáttum?
Sólborg: Arnar, vinur minn frá Ketchup Creative, kom til mín með þá hugmynd að gera þætti saman. Hann þurfti ekkert að sannfæra mig lengi og áður en ég vissi af var Stöð 2 komið á vagninn og við á leiðinni að framleiða þætti saman. Mig hafði svo sem lengi langað að búa til kynfræðsluþætti en ég er ekki viss um að ég hefði farið af stað með það án hvatningarinnar frá Arnari.
2. Hvernig hefur ferlið gengið?
Sólborg: Rosalega vel í heildina litið.
Við vinnslu þáttanna var ég að gera mjög margt í fyrsta skiptið; skrifa handrit, semja sketsa, finna leikara í hlutverk og fleira.
Ég er klárlega reynslunni ríkari en mjög sátt með lokaútkomuna. Ég var reyndar með dúndur teymi með mér við framleiðslu þáttanna, Ketchup Creative, og þetta hefði aldrei orðið að veruleika án þeirra. Það eru forréttindi að fá að vinna með svona miklum fagmönnum.
Sýnishorn úr þáttunum má sjá hér fyrir neðan.
3. Hvað finnst þér mikilvægast að komist til skila í gegnum þessa seríu?
Sólborg: Ég vona að fólk á öllum aldri geti horft á hana saman, að hún fræði einhverja og opni á umræður heima fyrir en kannski fyrst og fremst vona ég að fólk skemmti sér við að horfa á hana.
Umræðan um kynlíf þarf ekkert að vera rosalega alvarleg. Við megum alveg hlæja að þessu líka.
4. Hvað er fleira á döfinni hjá þér?
Sólborg: Vonandi meira af alls konar skrifum en á allra næstu misserum er það kannski helst það Söngvakeppnin í mars. Við Sanna, sænska vinkona mín, syngjum saman lagið Hækkum í botn og ég hlakka alveg ótrúlega til þess.
5. Annað sem þú vilt taka fram?
Sólborg:
Kveikið á Stöð 2+, hækkið í botn og horfið á Fávita með ömmu ykkar.