Mikil leit stóð yfir eftir manninum í gærkvöldi austarlega á landamærum ríkjanna tveggja, sem mjög erfitt er að komast yfir vegna mikils vopnaburðar landamæravarða.
Talið er að maðurinn hafi farið yfir landamærin á ellefta tímanum í gærkvöldi að staðartíma en yfirvöld í Suður-Kóreu segjast ekki geta staðhæft hvort maðurinn sé nú á lífi. Landamæraverðir hafi þó sent norðrinu tilkynningu um flóttann og óskað eftir því að maðurinn yrði verndaður.
Flótti norður er ólöglegur í Suður-Kóreu og snúi maðurinn aftur suður gæti hann átt yfir sér fangelsisvist. Ótti ríkir nú um að hersveitir norðursins muni bana manninum vegna strangra sóttvarnaaðgerða vegna kórónuveirunnar.
Landamæri Norður-Kóreu hafa verið lokuð með öllu síðan í ársbyrjun 2020 vegna faraldurs kórónuveiru þrátt fyrir að yfirvöld þar í landi vilji meina að enginn hafi greinst smitaður af veirunni. Yfirvöld norðursins voru harðlega gagnrýnd fyrir tveimur árum eftir að hersveitir bönuðu suðurkóreskum embættismanni sem hafði týnst á sjó. Honum hafði skolað upp á land í Norður-Kóreu en hersveitir skutu hann strax og báru fyrir sig að hann hefði getað borið kórónuveiruna til landsins.
Tveimur mánuðum áður hafði Kim Jong Un, leiðtogi Norður-Kóreu, lýst yfir neyðarástandi í landinu eftir að maður flúði norður frá Suður-Kóreu en Kim sagði manninn vera með einkenni Covid-19.
Harðar sóttvarnaaðgerðir hafa verið í gildi í Norður-Kóreu í nær tvö ár og hafa þær gert það að verkum að ferðalög milli héraða hafa verið skert. Það hefur leitt til þess að aldrei hafa eins fáir flúið frá Norður-Kóreu til suðurs.
Þá hafa samskipti milli ríkjanna tveggja verið verulega slæm eftir að viðræður yfirvalda í Washington og Pyongyang um afvopnun kjarnorkuvopna stöðnuðu eftir misheppnaðan fund þáverandi leiðtoga ríkjanna árið 2019.
Suður-Kórea er tæknilega séð enn í stríði við Norður-Kóreu eftir að Kórustríðið, sem stóð yfir á árunum 1950-1953, endaði með vopnahléi. Enn hefur enginn friðarsamningur milli ríkjanna verið undirritaður.