Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Ég vakna oftast klukkan hálf átta.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
„Fyrsti kaffibollinn er oftast mjög kærkominn og er þar af leiðandi fyrstur á dagskrá. Frúin fer oftast á undan mér til vinnu þannig að morgunverkin eru að útbúa nesti og koma grunnskóladrengjunum af stað út í daginn. Þeir eru blessunarlega minni B menn en ég.
Langhlaup eru orðin að lífstíl hjá mér og við hjónin deilum því áhugamáli. Ég hef hlaupið nokkur maraþon, reyndar flest á COVID tímum þannig að ég á ekki marga gilda tíma, en er að alltaf að bæta mig. Hlaupin eru frábært andlegt meðal, fyrir utan áhrifin á þrek og líkamsástand.
Við höfum kynnst frábæra fólki í kringum Hlaupahóp Stjörnunnar og svo er ég líka partur af hinum mystíska hlaupahóp HHHC, sem „straujar yfir stígana“ á laugardagsmorgnum klukkan sjö.
Það er auðvitað rannsóknarefni hvernig B maðurinn ég er kominn í þá stöðu að vakna klukkan sex, hendast í spandex og út að hlaupa. Miðaldra?
Hvaða jólagjöf finnst þér vera erfiðasta jólagjöfin að velja um hver jól?
„Ég datt í lukkupottinn þegar ég kynntist Guðrúnu minni. Hennar helsti galli er að hún er fædd 12.desember. Það er því alltaf áskorun að velja jólagjöf strax eftir afmælið þó að ég fái oftast góðlátlegar ábendingar og hugmyndir að lausnum! Þetta er líklega bara í anda snillinganna í Nýdönsk „Erfitt en gaman“.“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„RL, sem er í eigu tíu lífeyrissjóða, á hugbúnaðarkerfið Jóakim sem heldur m.a. utan um iðgjaldainnheimtu, verðbréfavörslu og lífeyrisgreiðslur.
Við hjá RL vinnum að því að yfirtaka rekstur hugbúnaðarkerfisins Jóakims þessar vikunnar. Það er því að mörgu að huga.
Núna erum við til að mynda að fara í mannaráðningar og munum setja atvinnuauglýsingar í loftið mjög fljótlega.
Ég kom inn í verkefnið síðastliðið vor og það hefur verið einstaklega skemmtilegt að kynnast metnaðarfullu og skemmtilegu fólki innan lífeyrissjóða og sem starfa við rekstur kerfisins. Hluti af verkefninu er síðan að útfæra framtíðarsýn varðandi rekstur upplýsingakerfa fyrir eigendur RL. Það verður mjög spennandi verkefni.
Ég er síðan bæjarfulltrúi í Garðabæ og sit í bæjarráði ásamt því að vera formaður Fjölskylduráðs. Á þeim vettvangi er nóg að gera og ég starfa með frábæru fólki. Ég hlakka til dæmis sérstaklega til þegar nýtt fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri verður tekið í notkun, sem er einkar glæsilegt og kemur í góðar þarfir. Ég er stoltur af því að hafa barist fyrir því að húsi rísi og að hafa tekið þátt í undirbúningsvinnu við útboð og þarfagreiningu.
Svo má ekki gleyma að við eru sjö á heimilinu, þannig að það falla alltaf til næg verkefni á þeim vígstöðvum.“
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
„Ég reyni, ef ég kem því við, að hafa fundalétta/-lausa daga og síðan aðra þar sem meira er um fundi. Það er nú öll spekin. Ég er síðan mikill skorpumaður. Vinn mjög ákveðið og vel þegar mikið liggur við og fæ mikið út úr því að vinna undir pressu.
Ég þarf samt á móti að velja mér öðruvísi verkefni strax eftir skorpurnar, sem eru þá léttari fyrir hugann og eins verkefni sem næra mann og hlaða upp á nýtt.“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Ég næ oftast að sofna skömmu eftir miðnætti, en ég sofna of sjaldan fyrr. Mér þykir mjög þægilegt að nýta seinni hluta kvölds í lestur bóka eða smá sjónvarpsgláp.
Í seinni tíð hafa síðan hlaðvörpin orðið ómissandi og ég er oft með þau í eyrunum á meðan gripið er í einhver húsverk á kvöldin.“