Starfsemi á jarðhæð Hörpu hefur tekið miklum breytingum síðastliðin misseri. Nýjasta viðbótin er þetta sýningarrými á vegum Listvals sem sérhæfir sig í myndlistarráðgjöf fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir. Á laugardag opnaði fyrsta sýning Listvals í Hörpu, Jólasýning Listvals, þar sem yfir 200 verk verða til sýnis og sölu eftir um 70 listamenn.
„Ætlunin er að skapa rýminu fallega og fágaða umgjörð í formi myndlistarsýninga og gallerís og veita gestum eftirminnilega upplifun og innsýn í það sem íslensk myndlist hefur uppá að bjóða. Við viljum skapa þægilegt andrúmsloft og hughrif fyrir gesti og gangandi. Gestir geta fengið ráðgjöf við val á verkum, fræðst um íslenska myndlist og skoðað bækur um myndlist. Þá ætlum við einnig að vera með viðburðadagskrá með uppákomum þar sem nýjum útgáfum og verkum verður fagnað.“ segir Elísabet Alma Svendsen stofnandi og annar eigandi Listvals.

„Breytingarnar sem gerðar hafa verið á þessu afmælisári Hörpu miða allar að því að starfsemi og þjónusta í húsinu rími vel við kjarnastarfsemina og laði til sín sem fjölbreyttastan hóp gesta. Harpa er fjölsóttasta viðburðahús landsins og það er því mikið tilhlökkunarefni að fá Listval inn með nýja vídd í upplifun og þjónustu við gesti,“ segir Svanhildur Konráðsdóttir forstjóri Hörpu.
Opnunartími Listvals í Hörpu verður alla daga frá 10-18. Hægt er að fylgjast með Listval á instagram www.instagram.com/listval_ og skoða verk á www.listval.is.