Innlent

Hófu fram­kvæmdir við nýja 450 í­búða byggð í Þor­láks­höfn

Atli Ísleifsson skrifar
Íbúðirnar í hverfinu verða tveggja til fjögurra herbergja á bilinu frá 60 til 95 fermetrar.
Íbúðirnar í hverfinu verða tveggja til fjögurra herbergja á bilinu frá 60 til 95 fermetrar. Ölfus/ONNO ehf

Framkvæmdir hófust í dag við uppbyggingu fyrsta áfanga nýrrar 450 íbúa byggðar í Þorlákshöfn sem fær nafnið Móabyggð. Fyrsta skóflastungan var tekin að byggingu fyrstu 78 íbúðanna í morgun.

Í tilkynningu frá Ölfusi segir að það láti nærri að um sé að ræða stærsta einstaka íbúðaverkefnið á Suðurlandi og mögulega á landinu utan höfuðborgarsvæðisins.

„Íbúðirnar í hverfinu verða tveggja til fjögurra herbergja á bilinu frá 60 til 95 fm. Húsin verða staðsteypt, einangruð að utan og klædd álklæðningu. Gluggar verða ál-/trégluggar.

Elliði Vignisson bæjarstjóri, Grétar Erlendsson, formaður bæjarráðs Ölfuss, Gísli Steinar Gíslason, framkvæmdarstjóri Hamrakórs, Jón Helgi Sen Erlendsson, hjá Hamrakór, og Jóhann Pétur Reyndal, fjármálastjóri Hamrakórs.Ölfus

Þróunarfélagið Hamrakór ehf. stendur að uppbyggingunni í Móabyggð og hefur félagið þegar samið við byggingafélagið Verkeiningu ehf. um byggingu fyrstu húsanna. Alls verða 78 íbúðir í 11 lágreistum fjölbýlishúsum í fyrsta áfanga Móabyggðar, þar sem mikil áhersla verður lögð á hlýja og aðlagandi umgjörð með lágstemmdri byggð sem skiptast mun í nokkra kjarna sem tengjast saman með vistgötum.

Ölfus/ONNO ehf

Fjölbreytt íbúðagerð

Í Móabyggð verður boðið upp á fjölbreyttar íbúðagerðir í lágreistum fjölbýlishúsum sem hafa marga kosti sérbýlis. Byggðin er miðsvæðis og hönnuð með nútíma þarfir íbúa í huga, þar sem er stutt er í alla helstu þjónustu, svo sem heilsugæslu, leik- og grunnskóla auk íþróttamannvirkja og sundlaugar. Við hönnun hverfisins var sérstaklega hugað að vistvænni uppbyggingu og voru markmið um orkuskipti í samgöngu til að mynda sérstaklega höfð í huga í hönnunarvinnunni, þar sem gert er ráð fyrr hleðslustöðvum,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×