Grátlegt tap Arnórs og félaga | Fjórða tap Balingen í röð Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 11. nóvember 2021 20:02 Arnór Þór Gunnarsson og félagar hans í Bergischer voru grátlega nálægt því að stela stigi af Kiel í kvöld. vísir/ernir Íslendingarnir riðu ekki feitum hesti í leikjum kvöldsins í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Arnór Þór Gunnarsson og félagar hans í Bergischer töpuðu með minnsta mun gegn Kiel, 24-23, og Daníel Þór Ingason og félagar hans í HBW Balingen-Weilstetten töpuðu gegn Erlangen 25-23.
Mikið jafnræði var með liðunum er Kiel tók á móti Bergischer í kvöld, og þegar fyrri hálfleikur var um það bil hálfnaður var allt jafnt, 7-7. Heimamenn í Kiel tóku þá frumkvæðið og náðu mest fjögurra marka forskoti og fóru svo inn í hálfleikinn þremur mörkum yfir, 15-12. Áfram héldu heimamenn að þjarma að Arnóri og félögum í seinni hálfleik og náðu mest sjö marka forystu, 22-15. Þá skoruðu gestirnir fimm mörk í röð og minnkuðu muninn í tvö mörk og æsispennandi lokamínútur framundan. Þegar tæplega mínúta var til leiksloka töpuðu heimamenn í Kiel boltanum og Arnór og félagar fengu því eitt tækifæri til að jafna leikinn. Niklas Landin í marki Kiel sá þó til þess að það voru heimamenn sem fögnuðu eins marks sigri, 24-23. Arnór Þór skoraði eitt mark fyrir Bergischer sem situr í áttunda sæti deildarinnar með níu stig eftir jafn marga leiki. Á sama tíma tóku Daníel Þór Ingason og félagar hans í Balingen á móti Erlangen. Nokkuð jafnræði var með liðunum, en gestirnir í Erlangen virtust þó alltaf vera skrefi á undan og unnu að lokum tveggja marka sigur, 25-23. Daníel Þór skoraði þrjú mörk fyrir Balingen úr jafn mörgum skotum, en liðið situr í næst neðsta sæti deildarinnar með fjögur stig eftir tíu leiki.
Þýski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Íslenski boltinn „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira