Sömdu titillag og gerðu tónlistarmyndband fyrir glæpasöguna Dansarinn Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 11. nóvember 2021 14:00 Daníel Ágúst fékk líka það hlutverk að lesa hljóðbókina. Glæpasagan Dansarinn eftir Óskar Guðmundsson er komin út sem hljóðbók, rafbók og innbundin bók. Storytel fór á þá leið að semja titillag fyrir bókina í samstarfi við tónlistarmennina Daníel Ágúst, Bomarz og Doctor Victor.
Lagið Dansarinn er nú einnig aðgengilegt á Spotify. Einnig hefur verið framleitt tónlistarmyndband sem tengist bókinni beint „Ekki er vitað til þess að þessi leið hafi verið farin áður, að gefa út lag samhliða útgáfu nýrrar skáldsögu. Það eru því spennandi tímar framundan sem sýna jafnframt hvaða víðtæku möguleika hljóðbókar formið hefur uppá að bjóða,“ segir í fréttatilkynningu um lagið. Frá tökum Hér fyrr neðan er hægt að horfa á myndbandið við lagið Dansarinn. Klippa: Dansarinn - Daníel Ágúst, Bomarz og Doctor Victor Skáldsagan er eftir verðlaunahöfundinn Óskar Guðmundsson en hann sló í gegn með fyrstu bók sinni Hilmu og á eftir fylgdu bækurnar Blóðengill og Boðorðin. Þær hlutu allar frábærar viðtökur lesenda og gagnrýnenda. Hilma hlaut Blóðdropann sem besta glæpasaga ársins og var tilnefnd til Glerlykilsins sem besta norræna glæpasagan. Bókin er komin út á prenti og fæst í öllum helstu bókabúðum landsins. Hún er aðgengileg sem hljóðbók á sama tíma hjá Storytel en Daníel Ágúst er einnig lesari bókarinnar. Daníel Ágúst les hljóðbókina Dansarinn og tók einnig þátt í að gera lag og tónlistarmyndband.Skjáskot Færir draumana yfir á soninn „Ferlið í skrifunum á Dansaranum og allri þeirri hugmyndavinnu sem fylgdi í kjölfarið hefur verið með ólíkindum skemmtilegt og lifandi. Fagmennska, hugmynda gleði og kraftur hefur ráðið ríkjum og það hafa verið forréttindi að vinna með öllu því skapandi fólki sem starfar hjá Storytel,“ segir Óskar Guðmundsson höfundur bókarinnar. Frá tökum á myndbandinu við Dansarinn. Sagan fjallar um Tony, ungan mann sem hefur alltaf verið utanveltu í lífinu. Hann elst upp hjá sjúkri og drykkfelldri móður sem var á sínum tíma helsta vonarstjarna Íslands í ballett. Þegar draumar hennar um frama í dans heiminum verða að engu reynir hún að færa þá yfir á son sinn með grimmilegum aðferðum – og skelfilegum afleiðingum. Myndbandið er blóðugt, líkt og bókin. Í Öskjuhlíðinni finnst lík sem hefur greinilega legið þar lengi. Rannsóknarlögreglumaðurinn Valdimar fær málið til skoðunar og fær til liðs við sig Ylfu sem er að stíga sín fyrstu skref innan lögreglunnar. Fljótlega kemur í ljós að hrottalegur morðingi gengur laus og að ekki er allt sem sýnist.
Tónlist Bókmenntir Bókaútgáfa Mest lesið Sýnilegri í senunni á meðgöngunni Menning Segir Sinatra hafa verið „risavaxinn“ neðan beltis Lífið Ástin blómstrar hjá Arndísi Önnu og Lindu Lífið Einn heitasti listamaður landsins heldur þræði Menning Skilaboð frá Höllu á Facebook upphaf að farsælu samstarfi Tíska og hönnun Það skrítnasta á djamminu: Amfetamín inni á klósetti og fólk að ríða Menning Þau þykja skara fram úr í íslenskri tónlist Tónlist Heitustu pörin í húrrandi jólagír Tíska og hönnun Vann ekki úr nauðguninni og skaddaðist á mænu Lífið Bílakarókí með Bítinu: „Rændirðu henni?“ Lífið Fleiri fréttir Þau þykja skara fram úr í íslenskri tónlist Þau hlutu verðlaun Dags íslenskrar tónlistar Bein útsending: Hver hlýtur viðurkenningu á Degi íslenskrar tónlistar? Bjallaði í eitt virtasta tónskáld Kasakstan Patti Smith heldur tónleika í Hörpu og Hofi Reggí-risinn Jimmy Cliff allur Lifandi tónlist beint í æð allan ársins hring Hlýja og nánd heima og uppi á sviði Gæsahúð gekk á milli gesta á Stuðmönnum Lög sem mönnum yrði slaufað fyrir í dag Frumsýning á Vísi: Fögnuðu nýjum lífstíl Lítið mál að trylla lýðinn kasólétt Fagnar fimmtugsafmæli með fyrstu tónleikum Ampop í átján ár Tók málin í eigin hendur og stofnaði nýja metal-hátíð á Selfossi Una Torfa heillaði baðgesti upp úr sundskónum Áhrifamikill óður til Grindvíkinga Sjá meira