Útförin reynist vera aftaka nafnlauss manns Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar 19. október 2021 14:29 Grafnár í gráum gír. aðsend Svertuskotna-mulningskjarnahljómsveitin Grafnár gefur í dag út myndband við lagið Ómennsk. Grafnár er orð yfir kviksetta manneskju, þ.e. grafna lifandi, og lætur tónlistarmyndbandið sveitina sannlega standa undir nafni.
Sveitin, sem samanstendur af Hrafnsunnu Ross söngvara, Kristján A. Reiners Friðrikssyni gítarleikara, Hallmari Gauta Halldórssyni bassaleikara og Øgmundi Kárasyni trommuleikara, hefur verið áberandi í grasrótarsenunni síðustu ár. Í vor lenti sveitin svo í þriðja sæti Músíktilrauna. Lagið verður hluti af splitti sveitarinnar með fornfrægu mulningssveitinni Forgarði helvítis sem stefnt er á að komi út á næsta ári. Hljóðritun, hljóðblöndun og hljóðjöfnun var í höndum Ægis Sindra altmúligtónlistarmanns og leikstýrði Heimir Snær Sveinsson myndbandinu. Hugmyndin af því hafi kviknað út frá kápu EP-plötu Grafnás, Útför heiguls, sem kom út árið 2019. Þar sést manneskja liggjandi í opinni líkkistu, bundin með hettu yfir höfðinu. „Sú hugmynd kom upp að láta myndbandið gerast í útför í kirkju, sem reynist síðan vera aftaka nafnlauss manns,“ segir Heimir. „Við vildum ná einhverri b-mynda, költ hrollvekju stemningu með leiknu atriðunum og tengja það við drungann í laginu.“
Tengdar fréttir Ólafur Kram sigraði í Músíktilraunum Hljómsveitin Ólafur Kram bar sigur úr bítum í Músíktilraunum, sem fór fram í Hörpu í gær. Tólf hljómsveitir tóku þátt í keppninni og eftir æsispennandi úrslitakvöld var niðurstaða dómnefndar og símakosninga kynnt. 30. maí 2021 14:08 Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fegurðardýrkun í Oz-landi Gagnrýni Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Tónlist Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið „Ekki er þetta uppáhaldslagið þitt?“ Lífið „Ljúfsárt og svolítið erfitt að kveðja kvikmyndahúsin“ Menning „Hún er komin til að vera“ Tónlist Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ Lífið Fleiri fréttir „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira
Ólafur Kram sigraði í Músíktilraunum Hljómsveitin Ólafur Kram bar sigur úr bítum í Músíktilraunum, sem fór fram í Hörpu í gær. Tólf hljómsveitir tóku þátt í keppninni og eftir æsispennandi úrslitakvöld var niðurstaða dómnefndar og símakosninga kynnt. 30. maí 2021 14:08