Barcelona vann í dag öruggan 3-0 sigur gegn Levante í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Fyrir leikinn höfðu Börsungar aðeins unnið tvo af fyrstu fimm leikjum tímabilsins, en eru nú að rétta sinn hlut.
Það dró til tíðinda strax á sjöttu mínútu þegar að Nemanja Radoja braut á Memphis Depay innan vítateigs. Depay fór sjálfur á punktinn og skoraði af öryggi framhjá Aitor í marki Levante.
Luuk de Jong tvöfaldaði forystu heimamanna á 14. mínútu eftir stoðsendingu frá Sergino Dest og staðan var því 2-0 í hálfleik.
Börsungar voru mun sterkari aðilinn í seinni hálfleik, líkt og í þeim fyrri, og það skilaði sér loksins á 91. mínútu þegar að Ansu Fati gulltryggði 3-0 sigur Barcelona sem er nú í fimmta sæti með 12 stig eftir sex leiki.
Levante er hins vegar enn í leit að sínum fyrsta sigri á tímabilinu, en liði situr í 17. sæti með fjögur stig.