„Harmleikur sem átti ekki erindi í fjölmiðla“ Hólmfríður Gísladóttir skrifar 20. september 2021 08:59 Björn Þorfinnsson ritstjóri DV og Jón Ósmann. Jón Ósmann sakar DV um að hafa birt frétt byggða á einhliða málflutningi barnsmóður sinnar og gagnrýnir miðilinn harðlega fyrir að hafa tilkynnt hann og son hans til Barnaverndar fyrir að hafa reynt að leiðrétta staðreyndavillur fyrir birtingu.
Málið varðar frétt sem DV birti um liprunarbréf sem Jakob Frímann Magnússon, athafna- og tónlistarmaður, sendi utanríkisráðuneytinu fyrir hönd Jóns og var síðar afturkallað. DV hefur í kjölfarið gefið út yfirlýsingu vegna málsins, þar sem Jón er sakaður um að hafa beitt syni sínum til að þagga niður umfjöllun miðilsins og talað um „tveggja sólarhringa áreitni“ í garð Erlu Hlynsdóttur blaðamanns og Björns Þorfinssonar ritstjóra. Erla og Björn segjast hafa verið beitt andlegu ofbeldi og þá segja þau þeirri „fyrirlitlegu aðferð“ hafa verið beitt að láta drenginn hringja ítrekað í Erlu og senda bréf á stjórnendur fyrirtækisins. „Svo viðurstyggilegt var þetta athæfi að okkur var nauðugur einn kosturinn að tilkynna málið til Barnaverndaryfirvalda. Það er í fyrsta sinn á ferli okkar beggja sem að vinnsla fréttar endar með slíkri tilkynningu,“ segir í yfirlýsingunni. „Það stendur því ekkert eftir af þessari frétt“ Í eigin yfirlýsingu bendir Jón hins vegar á að drengurinn sé 16 ára gamall og hann hafi sjálfur átt frumkvæði að því að mótmæla fréttaflutningum. Honum hafi þótt sárt að DV skyldi ekki leita álits hans á umræddri frétt, sem hefði varðað persónu hans á viðkvæman hátt. Þess ber að geta að umrætt liprunarbréf varðaði ferð drengsins utan, þar sem til stóð að hann myndi dvelja hjá föður sínum. Móðir hans hafði samþykkt að drengurinn ferðaðist út í apríl en aðilum ber ekki saman um hvort samþykki lá fyrir um ferð drengsins út í mars, þegar Jakob Frímann óskaði eftir liprunarbréfinu. „Um er að ræða viðkvæmt fjölskyldumál er snerist upp í harmleik sem við feðgar hefðum aldrei rifjað upp ótilneyddir, hvað þá opinberlega,“ segir Jón í yfirlýsingu sinni, sem ber yfirskriftina „Yfirlýsing frá föður vegna fjölmiðlaumfjöllunar“. Þar segir meðal annars að ferðaheimild hafi verið fyrir hendi þegar liprunarbréfið var gefið út og það hafi aldrei staðið til að nota það án ferðaheimildar. Allt í bréfinu hafi verið satt og rétt og þá hafi ekki þurft nein sérstök sambönd til að fá liprunarbréf. „Það stendur því ekkert eftir af þessari frétt,“ segir í yfirlýsingunni. DV hafi haft staðreyndir málsins undir höndum þegar fréttin fór í loftið en byggt hana alfarið á túlkun móður drengsins. Forsvarsmenn DV hafa gengist við þessu að hluta til en í yfirlýsingu þeirra segir meðal annars: „Það er ekkert launungarmál að gögnin komust í hendur DV af því að fjölskyldu móður barnsins ofbauð sú tilhugsun að Jakob Frímann væri að sækjast eftir þingsæti með Flokki fólksins. Að þeirra mati hafði hann misnotað ímynd sína og tengsl til að gera vini sínum persónulegan greiða og þeim hryllti við tilhugsuninni um spottakippingarnar sem gætu hafist ef Jakob Frímann kæmist á þing. Þeim fannst því beinlínis samfélagsleg skylda þeirra að vekja athygli á málinu.“ Yfirlýsing Jóns í heild: Yfirlýsing frá föður vegna fjölmiðlaumfjöllunar DV hefur að undanförnu farið mikinn í máli er varðar forræðisdeilur í fjölskyldu minni. Sérstaklega hefur miðillinn reynt að gera hjálpsemi Jakobs Frímanns Magnússonar í garð sonar míns tortryggilega, auk þess að virða hlið okkar feðga í þessu máli að vettugi. Ég sé mig því tilneyddan að stíga fram og koma sannleikanum að. Staðreyndir málsins: Ferðaheimild var fyrir hendi þegar liprunarbréfið var gefið út og aldrei stóð til að nota það án ferðaheimildar. Móðir fékk liprunarbréfið í hendurnar á sama tíma og ég í bréfinu var allt satt og rétt Það þurfti engin sérstök sambönd til að fá liprunarbréf. Hérlendis voru um 2000 liprunarbréft gefin út á skömmum tíma vegna COVID lokaðara landamæra út um allan heim Bréfið var aldrei notað og ferðin aldrei farin Það stendur því ekkert eftir af þessari frétt Þöggun DV hafði staðreyndir málsins undir höndum áður en fréttin fór í loftið en skrifaði hana samt alfarið byggða á túlkun móður drengsins. Sonur minn, sem er þolandi í málinu og að verða 16 ára. Honum finnst afar sárt að DV skyldi ekki leita álits hans á fréttinni sem snertir persónu hans á mjög viðkvæman hátt. Hann reyndi að koma sinni sögu af erfiðum samskiptum við móður sína í þessu máli á framfæri við blaðamann DV en á hann var ekki hlustað. Og eftir að DV birti seinni fréttina var lokað á hann á kommentakerfi DV! Kallast þetta ekki þöggun? Hefur hann ekki rétt á að tjá sig og á þá DV rétt til að fjalla um hann einhliða? Greta Thunberg var 15 ára þegar hún var „personof the year“ í Time og var hún þá þegar búin að kenna okkur öllum lexíu um jörðina okkar. Greta var jafngömul þá og sonur minn er nú. Á hana var hlustað en ekki á hann ég efast að hún hafi verið tilkynnt til barnaverndar. DV bætti reyndar um betur og kærði okkur feðga til Barnaverndarnefndar fyrir að bera hönd fyrir höfuð okkar með því að reyna að fá miðilinn til að falla frá rangri túlkun á staðreyndum. Í kærunni er látið líta út fyrir að ég hafi att syni mínum til að mótmæla fréttinni en hann gerði það algerlega af sjálfsdáðum. DV gengur meira að segja svo langt að þykjast hafa áhyggjur af mögulegum sjálfsvígshugsunum sonar míns, sem blaðamaðurinn neitaði alfarið að hlusta á, hvað þá að taka mark á! Finnst fólki hátt risið á slíkri blaðamennsku? Í ofanálag greindi DV frá kærunni á síðum sínum og er þar með orðið gerandi í málinu. Ef blaðamaður hefði nú haft raunverulegar áhyggjur, hefði hann þá fjallað um þetta mál eða prentað að hann hefði hringt í Barnavernd? Barnavernd má það? Harmleikur sem átti ekki erindi í fjölmiðla Um er að ræða viðkvæmt fjölskyldumál er snerist upp í harmleik sem við feðgar hefðum aldrei rifjað upp ótilneyddir, hvað þá opinberlega. Þetta var ömurlegt mál sem endaði með því að drengurinn minn hljópst að heiman frá móður sinni og lögreglan fól bróður mínum að gæta hans þar til ég kæmi til landsins. Við höfum verið sameinaðir síðan. Hann er hamingjusamur og sjálfstæður ungur maður sem vegnar vel félagslega og gengur vel í námi. Jakob sem fjölskylduvinur stóð þétt við bakið á syni mínum þegar aðstæður hans voru hvað erfiðastar á heimili móður hans. Mest var um vert að gaf hann syni mínum von þegar allt var að hrynja í lífi hans. Lokaorð Sonur minn og móðir hans talast ekki við. Það er óendalega sorglegt að DV birti þessa frétt byggða alfarið á hennar sjónarhóli og að móðir hans skuli standa á bak við hana. Í þessu máli er það móðirin sem er gerandinn en DV gerir hana að þolanda. Þessi fréttaflutningur er svo sannarlega ekki að hjálpa syni mínum að gróa sára sinna. Þess má geta að ég hef aldrei talað við Björn ritstjóra DV en einu sinni við Erlu blaðamann og þá á góðum nótum áður en fréttin birtist. Ég sendi þessu fóki svo pósta þar sem ég bað þau sem faðir að láta kyrt liggja. Við feðgar sendum vinsamlega pósta á DV, höfum ekkert að fela og birtum þessa pósta ef þarf. Kannski er þetta of mikið áreiti fyrir blaðmenn en eiga þeir ekki að hlusta á báðar hliðar máls? Okkur fannst lokayfirlýsing DV í málinu vera orðin að frétt þar sem viðkomandi fjölmiðlafólk er gert að þolendum og vegið sé að ritfrelsi á Íslandi. Það er ósk mín að DV finni í framtíðinni metnaði sínum farveg í því að segja fréttir sem endurspegla sannleikann. Það væri álitsauki fyrir DV að biðjast afsökunar á því að hafa gert sér frétt úr viðkvæmu fjölskyldumáli og án þess að fá staðreyndir málsis á hreint. Styðjum hvert annað til góðra verka. Jón Ósmann
Réttindi barna Fjölmiðlar Mest lesið Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Innlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Innlent Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Erlent Maður féll í Vestari-Jökulsá Innlent Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Innlent Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Innlent Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Erlent Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Erlent Nauðsynlegt að fólk fái úrræði til að vernda sig frá djúpfölsunum Innlent Fleiri fréttir Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Esjan snjólaus og það óvenju snemma Íslendingurinn í Grikklandi laus úr haldi Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Lögreglurannsókn á banaslysi í Brúará „svo til“ lokið Nauðsynlegt að fólk fái úrræði til að vernda sig frá djúpfölsunum Enginn handtekinn eftir hópslagsmálin Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Finna áhugann dvína á meðan vinir berjast og deyja á vígvellinum „Það fer enginn lífvörður út í“ Reyndi að kaupa glás af nammi og kom upp um tíu ára bankaræningja Gufunesmálið: „Þetta átti aldrei að fara svona“ Lygilegar tilraunir til að hafa áhrif á sakborning, Reynisfjara og tollar Trumps Olíuleit á teikniborðinu og býst við tíðindum í vetur Smokkamaðurinn enn ófundinn Sjúkrabíllinn bilaður og kemst ekki með sjúkling úr Þakgili Þrír á þaki jeppa á kafi í Jökulsá í Lóni Gefur sig fram fimmtíu árum eftir bankarán í Kópavogi Alvarlegt vinnuslys í Skagafirði Undirbúa steypuvinnu fyrir nýju Ölfusárbrúna Sjá meira