Tobba hefur komið víða við á sínum ferli en eftir að hafa starfað í ár sem ritstjóri DV ákvað hún að láta langþráðan draum rætast og reyna fyrir sér í veitingageiranum.
Matargerð og heilsa hefur alltaf verið ástríða Tobbu en eftir að hafa verið í nokkur ár að framleiða hágæða matvöru undir merkinu, Náttúrulega gott, ákvað hún að stíga skrefinu lengra og opna Granólabarinn í verbúðunum úti á Granda.

Það getur verið mikil vinna og álag sem fylgir því að fara út í eiginn rekstur en einnig mikil gleði.
Það er mikið stuð þessa dagana. Partýkúlur, engifer skot og gúmmúlaði alla daga.
Tobba er gift tónlistarmanninum og tölvunnarfræðingnum Karli Sigurðssyni og hafa þau verið saman í ellefu ár.
Parið gifti sig á Ítalíu árið 2019 þann 19. september svo að í dag fagna þau ástinni og tveggja ára brúðkaupsafmæli.
Hér fyrir neðan svarar Tobba spurningum í viðtalsliðnum Ást er.
Manstu eftir fyrstu máltíðinni ykkar saman? Ó já. Pizza á veitingastaðnum Hornið.
Hvort ykkar eldar meira? Ég en hann gengur frá, sem er fullkomið að mínu mati.

Á hvaða staði fariði þegar þið viljið fara saman rómantískt út að borða? Coocoo's Nest í taco eða röltum um miðbæinn og tökum einn rétt á nokkrum stöðum.
Lamb og hveitikökur á Fjallkonunni er stórkostlega gott, borgarar á Yuzu, bröns á Kopar eða sushi á Fiskmarkaðnum.
Úrvalið í miðborginni er dásamlegt. Svo er huggó að fá sér drykk, spila og hlusta á jazz á Skuggabaldri eftir kvöldverð á Apótekinu eða Duck and Rose.
Eruð þið yfirleitt sammála um hvað eigi að vera í matinn? Nei. Steik eða steikarsalat.
Eitthvað sem þú elskar að borða en hann borðar ekki? Nei. Við erum merkilega samstíga. Hann er samt skeptískur á aspas og ananas.

Hvaða matur sem þú gerir er uppáhaldsmaturinn hans og/eða öfugt? Kalli er frábær á grillinu og gerir æðisleg egg. Hann elskar allt ítalskt og elskar þegar ég geri lasagnia og canneloni.
Getur þú gefið fólki einhverjar ráðleggingar varðandi stefnumót og mat? Já, pantaðu það sem þig langar í ef þið farið út að borða en ekki það sem þér finnst smart að panta. Og ef hann er ekki til í að deila mat er hann ekki sá rétti.
Hversu mikilvægt finnst þér að taka sér tíma til að setjast niður og borða saman sem par? Mjög mikilvægt. Einu sinni í viku borðum við tvö saman eftir að dætur okkar eru stofnaðar. Eldum saman, spjöllum, fáum okkur rauðvínsglas og njótum þess að vera saman.
Einhver ráð eða uppskrift sem þú vilt deila af skemmtilegum stefnumótamat mat? Stefnumótamatur á að vera áreynslulaus og alls ekki sóðalegur. Það er hræðilegt að vera allur í sósu eða með eitthvað fast á milli tannanna.
Canneloni uppskrift Tobbu
- 1 pakki ferskar lasagna-plötur
- 300 g kotasæla
- 200 g rjómaostur (philadelphia eða þessi blái frá MS)
- 200 g spínat
- 300 g eldaður kjúklingur – kryddaður með kjúklingakryddi t.d. frá Pottagöldrum
- 3 hvítlauksrif
- 1 laukur
- 1 msk. ólífuolía
- 1 búnt fersk basilíka, söxuð
- Góð pastasósa – heimagerð eða 1 stór krukka keypt (um 400 g)
- 2 dl rifinn parmesan-ostur
- salt
- pipar

Aðferð
- Steikið laukinn og hvítlaukinn upp úr olíu. Þegar hann er orðinn mjúkur er spínatinu bætt við og það steikt uns mjúkt. Þá fer rjómaosturinn, kotasælan og helmingurinn af basilíkunni saman við. Látið þetta bráðna varlega saman og malla í um 5 mín. Saltið og piprið eftir smekk. Rífið þá kjúklinginn út í.
- Setjið olíu í botninn á eldföstu móti. Skerið lasagna-plötuna (kemur í einu heilu lagi) í jafna búta. Setjið fyllinguna í miðjuna á hverjum bút og rúllið upp, svo úr verður pastarör. Látið skilin snúa niður. Endurtakið uns fyllingin er búinn. Hellið pasta sósunni yfir og toppið með parmesan. Bakið við 180 gráður í 20 mínútur eða uns osturinn er tekinn að gyllast og pastað orðið vel heitt í gegn. Stráið restinni af basilíkunni yfir áður en borið er fram.
- Berið fram með góðu salatið og ítölsku rauðvíni sé stemmingin þannig. Einnig er gott að setja piparkvörn á borðið svo fólk geti krydda meira.
Það er nú ekki annað en við hæfi að enda þetta á laginu I Got You Babe sem er lag Tobbu og Kalla og var spilað í brúðkaupi þeirra fyrir tveimur árum síðan.
Makamál óska þeim hjónum innilega til hamingju með brúðkaupsafmælið.