Telja 0% líkur á að Ísland komist á HM Sindri Sverrisson skrifar 6. september 2021 18:02 Þó að Albert Guðmundsson og félagar í íslenska landsliðinu hafi á endanum náð að krækja í stig gegn Norður-Makedóníu þá er útlitið svart varðandi möguleikana á að komast á HM. vísir/hulda margrét Íslenska karlalandsliðið í fótbolta á enga möguleika á að komast í lokakeppni HM í Katar á næsta ári, samkvæmt spá íþróttatölfræðiveitunnar Gracenote.
Ísland er með fjögur stig eftir fyrri helming undankeppninnar, í 5. sæti síns riðils, og á fyrir höndum afar erfiðan leik við topplið Þýskalands á Laugardalsvelli á miðvikudagskvöld. Staðan í J-riðli eftir fimm umferðir af tíu: Þýskaland 12, Armenía 10, Rúmenía 9, Norður-Makedónía 8, Ísland 4, Liechtenstein 0. Efsta lið riðilsins kemst beint á HM en liðið í 2. sæti kemst í umspil. Samkvæmt mati Gracenote eru engar líkur á því úr þessu að Ísland vinni sinn riðil og aðeins 1% líkur á að liðið endi í 2. sæti og komist í umspil. Heildarlíkurnar á því núna að Ísland komist í lokakeppnina eru hins vegar nær 0 en 1 prósenti. - Want to know how your team is doing in UEFA qualification for the 2022 World Cup?All our forecasts of the chances of finishing as group winners, reaching the play-offs and qualifying for the World Cup can be found in the attached tables.#WCQ2022 #WCQualifiers pic.twitter.com/PgAzMyPaf8— Gracenote Live (@GracenoteLive) September 6, 2021 Ljóst er að útlitið myndi batna mikið ef að Ísland tæki upp á því að vinna Þýskaland á miðvikudaginn. Eftir 2-0 tap gegn Rúmeníu á fimmtudag og 2-2 jafntefli við Norður-Makedóníu á sunnudag, á meðan að Þýskaland vann Liechtenstein 2-0 og Armeníu 6-0 í fyrstu leikjum sínum undir stjórn Hansi Flick, virðist það þó afar fjarlægur draumur. Ísland á svo eftir heimaleiki við Armeníu og Liechtenstein í október en undankeppninni lýkur í nóvember þegar Ísland sækir Rúmeníu og Norður-Makedóníu heim. Gracenote telur 81% líkur á að Þýskaland vinni J-riðil, og að líklegast sé að Rúmenía eða Armenía nái 2. sæti og fari í umspil (33% líkur fyrir hvort lið).
HM 2022 í Katar Mest lesið Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný Golf Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Golf Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós Fótbolti Spila æfingarleik á meðan HM stendur Fótbolti Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Fótbolti Fylgstu með þessu á sögulegu U.S. Open móti fyrir Íslendinga Golf Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Sport Völlurinn of erfiður á síðustu tveim risamótum Golf Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga Golf Fleiri fréttir Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Tékkland - Suður-Afríka | Tvö lið sem þurfa sigur Ljósmyndarar eyðilögðu þjóðsönginn fyrir Tuchel Spila æfingarleik á meðan HM stendur Gleði og gott veður á TM mótinu í Eyjum Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós Maður dagsins á HM: Borinn saman við Essien Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Stuðningsmenn baula á vatnspásurnar Liverpool sækir spænskan landsliðsmann Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Alsíringum tekið opnum örmum í Kansas Þjálfaraskipti hjá Sveindísi Frábær byrjun Englendinga Komust í undanúrslit eftir framlengdan leik Sýndi miklar tilfinningar eftir fyrsta markið Þjóðhátíðarsigur á Ísafirði Portúgal - Austur-Kongó | Ronaldo byrjar og slær met ÍR stöðvaði Gróttu og Kári kom Fylki í annað sæti Bjó til sex mörk Fram á gamla heimavellinum Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Evrópudagskrá íslensku liðanna klár Vestri gæti farið til Búlgaríu eða Írlands Mourinho hringdi í Silva sem samdi til tveggja ára Ísraelskt lið bíður Víkinga Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Sjáðu mörkin í Víkinni, sturlunina í Garðabæ og Viktor tækla Val Freyr ráðinn þjálfari Rosenborg Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Sjá meira