Vitað er af tæplega tíu þúsund slösuðum til viðbótar. Ástandið er afar slæmt í suðvesturhluta landsins sem fór verst út úr skjálftanum en þar eru nú öll sjúkrahús yfirfull og þúsundir hafa misst heimili sín og fjölskyldur.
Björgunarstarf í landinu gekk afar erfiðlega fyrir sig í dag og urðu björgunarliðar að gera hlé á störfum sínum vegna veðurskilyrða. Hitabeltisstormurinn Grace gekk á land í dag með úrhellisrigningu. Varað var við allt að 38 sentímetra úrkomu á sumum svæðum, að því er segir í frétt AP.
Í gær ræddi Stöð 2 við Gísla Rafn Ólafsson, fyrrverandi stjórnanda Íslensku alþjóðasveitarinnar, sem sinnti hjálparstarfi á Haítí eftir hamfaraskjálftann árið 2010. Þá létust um 200 þúsund manns, en sá skjálfti varð mun nær höfuðborg landsins Porto-au-Prince:
Skjálftinn á laugardag mældist 7,2 að stærð og fylgdu honum fjölmargir eftirskjálftar. Fleiri en sjö þúsund heimili eyðilögðust í skjálftunum og önnur fimm þúsund eru mikið skemmd.
Hér má sjá myndband af ástandinu vegna Grace hjá íbúum á austurhluta eyjarinnar Hispanjólu, þar sem Haítí er að finna, seint í gær áður en Grace hélt áfram vestur til Haítí: