Innlent

Álit eldri kynslóðarinnar á TikTok: „Að mörgu leyti finnst mér unga fólkið skemmtilegra en það eldra“

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
TikTok er einn allra vinsælasti samfélagsmiðill unga fólksins.
TikTok er einn allra vinsælasti samfélagsmiðill unga fólksins. VÍSIR

Fulltrúum eldri kynslóðarinnar sem fréttastofa ræddi við líst vel á samfélagsmiðilinn TikTok. Þeir segja unga fólkið í dag skemmtilegra en það eldra og ein gæti vel hugsað sér að stofna sinn eigin TikTok reikning.

TikTok er einn vinsælasti samfélagsmiðill ungu kynslóðarinnar. Miðillinn hefur rutt sér til rúms hérlendis líkt og erlendis. Fréttastofa ræddi við fulltrúa eldri kynslóðarinnar um miðilinn og þeirra álit á þessu fyrirbæri. Við látum myndbandið tala sínu máli en líkt og heyrist finnst þeim samfélagsmiðillinn hinn skemmtilegasti.

„Mér finnst þetta allt í lagi ef þau hafa gaman að þessu,“ sagði Hanna Rún Guðmundsdóttir.

„Þetta er svo sem ekki verri dans en aðrir dansar. Er þetta ekki ágætt. Að mörgu leyti finnst mér unga fólkið skemmtilegra en eldra fólkið,“ var meðal þess sem Guðrún Helgadóttir hafði að segja um miðilinn.

Þá finnst þeim tískan unga fólksins í lagi.

„Já mér finnst tískan bara ágæt. Ég sé ekkert athugavert við tískuna nú til dags,“ sagði Guðrún.

Gætir þú hugsað þér að gera svona myndbönd í dag? „Já, já ég sé ekkert athugavert við það.“


Tengdar fréttir

Sprenghlægileg TikTok myndbönd

TikTok er snjallforrit þar sem notendur geta hlaðið upp myndböndum og sömuleiðis horfa á myndbönd annarra notenda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×