Steypustöðin verður græn Steypustöðin 12. júlí 2021 14:02 Sameinað félag hefur fengið nýtt og uppfært útlit. Steypustöðin hefur sameinað vörumerkin Loftorku Borgarnesi og Hólaskarð undir nafninu Steypustöðin. Við sameininguna fær félagið nýtt og uppfært útlit. „
Þetta er lokahnykkurinn á sameiningarferli Steypustöðvarinnar og dótturfélaga þess sem hófst fyrir um tveimur árum. Við höfum nýtt þann tíma vel í að straumlínulaga starfsemina, þétta framboð félagsins á byggingarlausnum og sækjum nú sterkari fram sem ein heild,“ segir Björn Ingi Victorsson forstjóri Steypustöðvarinnar en Steypustöðin hefur sameinað vörumerkin Loftorku Borgarnesi og Hólaskarð undir nafninu Steypustöðin. Við sameininguna fær félagið nýtt og uppfært útlit sem endurspeglar hlutverk þess og stefnu. Björn Ingi Victorsson forstjóri Steypustöðvarinnar segir spennandi tíma framundan. „Nýtt útlit og vörumerki endurspeglar fjölbreyttara framboð félagsins á byggingarlausnum og skarpari áherslur í þjónustu við byggingariðnaðinn og sameinar alla starfsmenn undir eitt sterkara vörumerki. Við teljum mikil sóknartækifæri fólgin í því að sameina heildarstarfsemi félagsins. Í þessu felst skilvirkara sölu og markaðsstarf og aukið hagræði í rekstri,“ segir Björn Ingi. Lausnaframboð Steypustöðvarinnar mun ná til víðtækari sviða í byggingaframkvæmdum allt frá framleiðslu og dreifingu á blautsteypu, framleiðslu á forsteyptum einingum og hellum, múrvörum og fylliefnum til framkvæmda. Auk þess mun félagið leggja enn frekari áherslu á endurvinnslu á steypu og malbiki. „Við ætlum okkur að vera skrefi á undan á byggingamarkaðnum og bjóða viðskiptavinum okkar sterkari þjónustu og ráðgjöf á þeim lausnum sem við höfum upp á að bjóða. Þetta þýðir aukin breidd í starfseminni, nýsköpun, betri og heildstæðari þjónusta. Við erum nú vel í stakk búin til að þjónusta viðskiptavini okkar ennþá betur með víðtækari og spennandi lausnum sem hafa ekki verið til staðar á markaðnum. Það eru svo sannarlega spennandi tímar framundan.“ Nýtt merki sameinaðs félags endurspeglar hlutverk þess og stefnu. Hjá Steypustöðinni starfa um 300 starfsmenn á um 10 starfsstöðvum í Reykjavík, Hafnarfirði, Reykjanesi, Borgarnesi, Selfossi og Vík með framleiðslugetu á um 600 rúmmetrum af Steypu á klukkustund. Velta ársins 2020 voru tæpir 8 milljarðar. Steypustöðin var stofnuð árið 1947 og var frumkvöðull í Evrópu með dreifingu á blautsteypu úr steypubifreiðum og varðaði þannig brautina í mannvirkjagerð á Íslandi. Loftorka var stofnuð árið 1962 og malarnámur Hólaskarðs og Vatnsskarðs eiga rætur að rekja til 9. áratugs síðustu aldar.
Mest lesið Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent Selja allan eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka Viðskipti innlent „Já veistu Gummi, þetta gæti verið eitthvað“ Atvinnulíf Líklega stærsta eignasala ríkissjóðs frá upphafi Viðskipti innlent Margföld umframáskrift en útboðið ekki stækkað í bili Viðskipti innlent Landsbankinn við Austurstræti falur Viðskipti innlent Sjóvá tapar hálfum milljarði Viðskipti innlent Málaferli vegna innkaupa ÁTVR halda enn áfram Viðskipti innlent Hefja flug til Edinborgar og Malaga Viðskipti innlent Bjarni nýr framkvæmdastjóri RVK Bruggfélags Viðskipti innlent Fleiri fréttir Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Ókeypis trygging með öllum Hakkapeliita dekkjum frá Nokian Tyres Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Sjá meira
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent