Sá stærsti í sumar Karl Lúðvíksson skrifar 6. júlí 2021 09:38 Nils Folmer með 102 sm laxinn Jökla hefur verið að koma sterk inn síðustu sumur og er að margra mati sú veiðiá sem á hvað mest inni á landinu.
Þetta er mögnuð á sem er engu að síður svolítið dyntótt enda á hún það til að fara á yfirfall á versta tíma í ágúst þegar veiðin er að ná hámarki en þegar yfirfalli seinkar fram í september eða lok ágúst eins og stundum vill gerast þá er þetta eitt mest spennandi veiðisvæði landsins. Stórlaxar liggja þarna víða og í gær tók Nils Folmer einn af þeim en það var 102 sm nýgengin lax sem er einn af þeim glæsilegri sem hefur veiðst þar síðustu ár. Það verður spennandi að sjá hvernig Jökla verður í sumar.
Stangveiði Mest lesið Rjúpa eða ekki rjúpa? Veiði Níu ára gutti með 96 sentimetra hæng Veiði Ein besta bleikjuveiði síðustu ára við Þingvallavatn Veiði Hrikalegar tölur úr Ytri Rangá Veiði Kvennadeild SVFR hittist annað kvöld Veiði Mok á Zelduna í Eystri Rangá Veiði 22 punda lax úr Jöklu Veiði Vorfagnaður SVFR er haldinn á morgun Veiði Vötnin fyrir norðan farin að gefa vel Veiði Laxveiði á næsta fræðslukvöldi SVFR Veiði