Óendanlega þakklát
„Ég finn núna hvað litlu hlutirnir skipta miklu máli. Veröldin smækkar þegar maður er hverja stund við dauðans dyr. Hver einasta stund verður svo dýrmæt og hver andardráttur skiptir svo miklu meira máli en fréttir dagsins.“
Katrín Björk var 22 ára heilbrigð stúlka á leið í klásuspróf í hjúkrunarfræði þegar lífið tók skyndilega u-beygju árið 2014 þegar hún fékk sína fyrstu heilablæðingu. Orsökin var séríslenskur erfðasjúkdómur. Þetta gjörbreytti hennar lífi og viðhorfi.
„Lífið varð eins og dýrgripur sem ég þurfti að halda fast í svo ég myndi ekki missa hann. Ég lærði að kunna að meta hvert það skipti sem ég fékk að vakna, sjá litbrigði náttúrunnar og hlusta á hversdaginn ganga sinn vanagang. Ég er svo óendanlega þakklát fyrir að fá að taka þátt í þessu lífi með öllum þeim tækifærum sem það færir manni, sigrum jafnt sem ósigrum.“

Kærulaust fífl á vegum úti
Síðan í haust hefur Katrín Björk fengið að njóta lífsins á sinn eigin hátt.
„Þá keypti ég mér hjól og get í kjölfarið í fyrsta sinn síðan ég veiktist farið ein út í náttúruna og notið lífsins á mínum hraða og forsendum. Það er bara ég sem stjórna því hvert ég fer og á hvaða hraða ég er. Þetta er svo ólíkt því að vera keyrð um í hjólastól úti. Þá verður mér alltaf svo kalt og á erfitt með að vera í samskiptum við fólkið sem er með mér. Ég elska að fá að vera á hjólinu, hvort sem það er ein með hugsunum mínum eða með öðru fólki. Alveg eins og þegar ég fór í hlaupatúrana mína áður en ég veiktist þá kvikna oft bestu hugmyndirnar mínar þegar ég er búin að reyna á mig og er orðin sveitt ein á hjólinu. Þó að fyrstu skiptin á hjólinu hafi ég verið mjög óörugg þóttist ég vera öryggið uppmálað. Innst inni var ég þó skíthrædd og alltaf að pæla í því hvar ég væri staðsett á götunni eða gangstéttinni. Í dag er ég orðin miklu öruggari og stundum líður mér eins og kærulausu fífli á vegum úti.“

Katrín Björk segir að þetta sé mjög hressandi tilfinning.
„Það eru svo mikil forréttindi að fá að sjá náttúruna vakna eftir veturinn og vera hluti af henni. Það er svo magnað að sjá heiminn opnast beint fyrir framan augun á sér og finna fyrir árstíðaskiptunum og veðrabrigðunum. Að sjá trén laufgast og grasið grænka, að vera köld og blaut úti í rigningu og vindi eða svitna og finna fyrir hitanum í sólskini. Það er ekkert sem getur toppað það! Ég nýt þess að hjóla með vindinn í bakið og ber höfuðið hátt með alla mína lífsreynslu.“
Katrín Björk sagði sína sögu í þættinum Ísland í dag núna í vor og má sjá innslagið í spilaranum hér fyrir neðan.