Verjandi segir ótækt að lögregla rannsaki sinn eigin leka. Hann staðfestir að gögnum hafi verið lekið til sakbornings.
Sú aðferð að velja árganga af handahófi í bólusetningar þjónar ekki tilgangi sínum að mati vísindamanns hjá Íslenskri erfðagreiningu. Við ræðum við hann í kvöldfréttum okkar og jafnframt Þórólf Guðnason sóttvarnalækni.
Framboð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra sakar bróður Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra um að hafa nýtt sér beinan aðgang að félagatali Sjálfstæðisflokksins fyrir prófkjör flokksins, sem hefst á morgun. Við verðum í beinni útsendingu frá Valhöll í fréttatímanum.