Innlent

„Ekki einn maður haldið því fram að þetta sé sanngjarnt“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þórir Skarphéðinsson hugsar til þúsunda landsmanna sem tóku lán hjá Íbúðalánasjóði fyrir árið 2013 með 16% uppgreiðslugjaldi.
Þórir Skarphéðinsson hugsar til þúsunda landsmanna sem tóku lán hjá Íbúðalánasjóði fyrir árið 2013 með 16% uppgreiðslugjaldi. Vísir/SigurjónÓ

Lögmaður hjóna sem fögnuðu sigri í deilu við Íbúðalánasjóð vegna uppgreiðslugjalds sem metið var ólögmætt í héraðsdómi í desember segir nýfallinn dóm fullskipaðs Hæstarétts í málinu mikil vonbrigði. Dómurinn féll Íbúðalánasjóði í vil.

Hjónin tóku fjörutíu ára lán hjá Íbúðalánasjóði árið 2008. Árið 2019 ætluðu þau að greiða inn á lánið sitt en komust að því að til þess að gera það þyrftu þau að greiða 16% uppgreiðsluþóknun af eftirstöðvum lánsins. 3,7 milljónir í krónum talið í tilfelli þessara hjóna.

Hámarksuppgreiðslugjald á Íslandi hefur verið 1% frá árinu 2013. Þórir Skarphéðinsson, lögmaður hjónanna, segir dóminn mikinn vonbrigði fyrir hjónin en ekki síður allan þann fjölda fólks sem sé fast í viðjum þessara hávaxtalána Íbúðalánasjóðs sem það tók fyrir árið 2013. Fólkið geti ekki endurfjármagnað á sama tíma og margfalt betri kjör standi til boða.

„Þetta er algjör viðsnúningur. Við vorum náttúrulega full bjartsýni og vonar eftir dóminn frá því í desember þar sem fjölskipaður héraðsdómur kemst að því að þessar uppreiðsluþóknanir væru ólögmætar. Sá dómur var mjög afgerandi og vel rökstuddur,“ segir Þórir.

„Hæstiréttur þurfti að leggjast í ansi mikla vinnu til að snúa sig út úr þeim dómi - sem eru auðvitað vonbrigði.“

Allajafna dæmir einn dómari í málum í héraði. Stundum þrír þegar aðstæður kalla á það. Til dæmis þegar svo mikið er í húfi. Mörg þúsund manns og fleiri milljarðar króna. Þórir segist hafa talið að svo vel rökstuddur dómur yrði staðfestur í Hæstarétti en svo hafi ekki verið.

„Það er ansi langt seilst í lagatúlkunum að mínu mati. Það er í raun þannig að allur vafi er túlkaður sjóðnum í hag,“ segir Þórir. Hann vísar til þess að tekið sé fram í dómi Hæstaréttar að heimild fyrir uppgreiðslugjaldi og reglugerð þess efnis hefði mátt vera skýrari. En það hafi ekki nægt til að staðfesta niðurstöðu í héraði.

„Þarna er ákveðinn vafi í túlkun á ákvæðum en það er ekki túlkað umbjóðendum mínum í hag.“

Þórir segist enn vera að glöggva sig á niðurstöðunni. Hann sé ekki tilbúinn að úttala sig á þessu stigi hvort dómurinn hafi fordæmisgildi í öllum öðrum uppgreiðslumálum. Hann hugsar til fólks sem sé fast í klóm þessa láns.

Alveg sama við hvern þú talar

„Það hefur hellingur af fólki haft samband, sem stendur frammi fyrri því að endurfjármagna sig en þurfa að greiða 3-4 milljónir í þóknun.“

Upphæð sem í mörgum tilfellum er hærri en sú upphæð sem til stendur að greiða inn á lánið.

„Það er skelfilegt að vera fastur í þessu á meðan verið er að bjóða önnur lán á miklu lægri vöxtum - en geta sig hvergi hreyft. Það hefur ekki einn maður haldið því fram að þetta sé sanngjarnt. Það er alveg sama við hvern þú talar.“


Tengdar fréttir

Áfrýjar dómi sem gæti kostað ríkið milljarða

Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að áfrýja dómi í máli hjóna sem höfðu betur í dómsmáli gegn Íbúðarlánasjóði. Ríkið segir að þetta sé gert í ljósi þeirra verulegu hagsmuna sem undir séu.

Ólögmætt uppgreiðslugjald

Héraðsdóm­ur Reykja­vík­ur hef­ur dæmt upp­greiðslu­gjald lánþega á lán­um sem tek­in voru hjá Íbúðalána­sjóði (ÍLS) á ár­un­um 2005-13 ólög­leg. ÍLS var óheim­ilt að krefja lánþega um greiðslu upp­greiðslu­gjalda þegar þeir greiddu lán sín upp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×