Við sögðum að vísu frá því um daginn að líklega hefði fyrsti lax sumarsins veiðst í Kjósinni en menn voru ekki alveg sammála um það hvort um niðurgöngulax væri að ræða eða hvort hann væri nýr og þar af leiðandi ekki alveg full samstaða um að laxinn væri mættur.
Nú ber svo við að tveir leiðsögumenn við Laxá settu myndavél ofan í Lækjarbreiðu og þar mátti sjá nýgengin lax svo það er á hreinu að laxinn er mættur. Nú tekur við spennandi bið hjá veiðimönnum eftir því að fyrstu árnar opni en yfirleitt er grannt fylgst með opnunum í Blöndu og Norðurá varðandi að sjá hvernig fyrstu göngurnar eru.
Þetta er búinn að vera ansi kaldur maí og stundum hefur því verið haldið á lofti að laxinn bíði aðeins eftir því að árnar hlýni svolítið áður en hann gengur upp. Laxveiðitímabilið hefst í byrjun júní og stendur yfir fram í lok október.