Helena, Margrét Lára og Mist hita rækilega upp fyrir fótboltasumarið Sindri Sverrisson skrifar 29. apríl 2021 14:01 Breiðablik og Valur háðu spennandi einvígi um Íslandsmeistaratitilinn í fyrra þar sem Blikar höfðu betur. Miklar breytingar hafa hins vegar orðið á báðum liðum, sérstaklega meistaraliðinu. vísir/daníel Keppnistímabilið í Pepsi Max-deild kvenna hefst á þriðjudaginn og þau sem vilja vera með á nótunum ættu að fylgjast með sérstökum upphitunarþætti af Pepsi Max-mörkunum í kvöld.
Þátturinn hefst kl. 21.15 á Stöð 2 Sport 4 en þar mun Helena Ólafsdóttir rýna í sumarið með markadrottningu Íslands, Margréti Láru Viðarsdóttur, og Mist Rúnarsdóttur sér til fulltingis. Þríeykið mun taka hvert liðanna tíu í deildinni vel fyrir, velta fyrir sér styrkleikum og veikleikum, og heyra hljóðið úr herbúðum þeirra. Eitt lið leikur nú í fyrsta sinn í deildinni en það er Tindastóll frá Sauðárkróki sem komst upp ásamt Keflavík. Breiðablik er ríkjandi Íslandsmeistari eftir að hafa haft betur í æsispennandi einvígi við Val um titilinn í fyrra. Frá síðasta tímabili hefur fjöldi leikmanna haldið í atvinnumennsku. Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir, sem nú þjálfar unglingalið hjá Kristianstad í Svíþjóð eftir að hafa verið einn af sérfræðingum Helenu í fyrra, verður á línunni í þættinum í kvöld og ræðir meðal annars um þennan mikla fjölda atvinnumanna. Þátturinn hefst eins og fyrr segir kl. 21.15 og verður í beinni á Stöð 2 Sport 4. Í sumar verða Pepsi Max mörkin svo á sínum stað á fimmtudagskvöldum þar sem fjallað verður um allt sem tengist Pepsi Max deildinni og fótbolta kvenna yfirhöfuð.
Pepsi Max-mörkin Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Ég gæti ekki verið ánægðari“ Handbolti Dagur gæti gert það sem enginn þjálfari hefur afrekað í handboltasögunni Handbolti Hreiðar Levý um skrif Víðis: Að líkja þessu við landráð er pistlahöfundi til skammar Handbolti Liverpool ótrúlega nálægt hundrað milljónum en náði þeim ekki Enski boltinn Hákon búinn að fórna miklu: „Ég stefni bara á meira og enn hærra“ Fótbolti City mætir Real Madrid í umspilinu Fótbolti Orri og Elías í einvígi um að mæta ensku stórliði Fótbolti Ósammála Alfreð: „Auðvitað er þetta bakslag“ Handbolti Magnaðar móttökur fyrir utan höllina kveiktu í strákunum hans Dags Handbolti Segir hegðun Brynjars Karls „ekkert annað en ofbeldi“ Körfubolti Fleiri fréttir Þjálfari fékk þriggja leikja bann fyrir að sparka í James Rodríguez KR vann fertugasta Reykjavíkurmeistaratitilinn annað árið í röð Orri og Elías í einvígi um að mæta ensku stórliði Tveir íslenskir Nökkvar í Rotterdam City mætir Real Madrid í umspilinu Hákon búinn að fórna miklu: „Ég stefni bara á meira og enn hærra“ Aldrei borgað meira fyrir fótboltakonur en á síðasta ári Veðjaði 403 sinnum á leiki í eigin deild Liverpool ótrúlega nálægt hundrað milljónum en náði þeim ekki Kristianstad um söluna á Hlín: Hefði ekki gerst fyrir fjórum til fimm árum KR Reykjavíkurmeistari eftir öruggan sigur á Val Lærisveinar Solskjær úr leik Rauðu djöflarnir áfram taplausir Eggert Aron kom inn af bekknum í tapi gegn Tottenham Orri Steinn nýtti tækifærið Hlín til liðs við Leicester City Sakar Arteta um að ýta undir dómarahatur Gagnrýnir Durán: „Ekki alvöru fótboltamaður“ Cristiano Ronaldo: Minn eigin sonur sagði að Mbappé væri betri en ég Amorim um Rashford: Ef hann breytist þá mun ég nota hann Sjáðu mörkin frá sögulegu lokakvöldi Meistaradeildarinnar Segir norska sambandið hafa stuðningsmenn félaganna að fíflum Félagaskiptaglugginn: Hvaða eftirsótti framherji færir sig um set? City mun mæta Real eða Bayern í umspilinu Hákon kom að marki í stórsigri og Lille tryggði sig beint áfram Sigur á Spáni lyfti Skyttunum upp í þriðja sætið Liverpool tapaði í Hollandi hélt þó toppsætinu Man City komst í umspilið eftir allt saman Í beinni: Lokaumferðin í Meistaradeildinni Freyr sagður vilja Sævar Atla til Brann Sjá meira