Frábær veiði á ION svæðinu Karl Lúðvíksson skrifar 6. apríl 2021 10:34 Veiðin fór vel af stað á ION svæðinu en núna var byrjað 1. apríl í fyrsta skipti og þrátt fyrir að byrja fyrr var fiskurinn löngu mættur.
Veiðin fór vel af stað á ION svæðinu en núna var byrjað 1. apríl í fyrsta skipti og þrátt fyrir að byrja fyrr var fiskurinn löngu mættur. Það vita það allir sem hafa veitt á IOn svæðinu að veiðin þar verður ekki jöfnuð og það er líklega erfitt eða vonlaust að finna jafn gjöfult veiðisvæði á stórum urriða í heiminum. Veiðin fyrsta daginn var 60 fiskar og dagur tvö kláraði í rétt rúmum 70 fiskum. Samkvæmt okkar heimildum voru síðan um 40 fiskar dregnir á land 3. apríl. "Ég hef ekki heyrt hvernig veiðin var um páskana en byrjunin var mjög góð og lofar góðu um framhaldið. Það skemmtilega við þetta var að þrátt fyrir að mesta veiðin sé eins og venjulega á þessum tíma á straumflugur voru líka að veiðast fiskar á púpur og þurrflugur og þá sérstaklega í Þorsteinsvíkunni" sagði Jóhann Hafnfjörð Rafnsson þegar Veiðivísir ræddi við hann í morgunsárið.
Stangveiði Mest lesið Dýrasti dagurinn á 450.000 í Laxá í Ásum? Veiði Laxinn dreifir sér vel í Korpu Veiði Stundum vill hann bara Frigga Veiði Mikil hækkun í Skjálfandafljóti Veiði Magnað miðsvæði í Laxá í Aðaldal Veiði Svipaður fjöldi umsókna og 2011 Veiði Elliðaárnar undir meðaltali síðustu ára Veiði 50 laxar á 3 dögum úr Skjálfanda Veiði Fréttir af svæðum SVFR Veiði Kastkeppni á skemmtileikum Veiði