99 sm urriði í vorveiðinni í Ytri Rangá Karl Lúðvíksson skrifar 3. apríl 2021 11:01 Jóhannes Hinriksson Ytri Rangá hefur lengi verið ein af vinsælustu laxveiðiám landsins en það vita kannski ekki allir að í henni er líka stór og flottur urriði í ánni.
Ytri Rangá hefur lengi verið ein af vinsælustu laxveiðiám landsins en það vita kannski ekki allir að í henni er líka stór og flottur urriði í ánni. Það hefur verið nokkur ásókn erlendra veiðimanna í vorveiðina sem og silungsveiðina í Ytri rangá á vorin enda fyrirfinnst þar stofn af staðbundnum urriða sem getur orðið feyknastór. Fyrsti urriðinn sem veiðist á þessu ári á svæðinu var heldur engin smásmíði eða 99 sm og við höfum ekki ennþá heyrt af jafn stórum fiski á þessu veiðitímabili en það eru bara komnir þrír dagar svo við skulum bara bíða róleg. Það var Jóhannes Guðlaugsson sem veiddi þennan flotta urriða við Húsabakka og tók hann tinsel flugu. Ytri Rangá hefur einnig sterkan stofn af staðbundnum urriða á efri svæðunum í ánni eða fyrir ofan Árbæjarfoss en síðan er oftar en ekki mikið af sjóbirting í ánni alveg frá Ægissíðufossi og niður að Borg á vorin og þarna má oft sjá sjóbirtinga sem eru að teygja sig vel í meterinn.
Stangveiði Mest lesið Dýrasti dagurinn á 450.000 í Laxá í Ásum? Veiði Laxinn dreifir sér vel í Korpu Veiði Stundum vill hann bara Frigga Veiði Mikil hækkun í Skjálfandafljóti Veiði Magnað miðsvæði í Laxá í Aðaldal Veiði Svipaður fjöldi umsókna og 2011 Veiði Elliðaárnar undir meðaltali síðustu ára Veiði 50 laxar á 3 dögum úr Skjálfanda Veiði Fréttir af svæðum SVFR Veiði Kastkeppni á skemmtileikum Veiði