Innkalla andlitsgrímur sem eru sagðar veita falskt öryggi Eiður Þór Árnason skrifar 26. mars 2021 17:31 Fólk er beðið um að hætta notkun grímanna og henda þeim eða skila til fyrirtækisins. Rekstrarvörur/Já.is Rekstrarvörur hafa hafið innköllun á KN95/FFP2 andlitsgrímum sem stóðust ekki prófanir. Um er að ræða CE merktar persónuhlífar af gerðinni FFP2 sem seldar voru í tíu stykkja pakkningum með vörunúmerinu 10KN95.
Grímurnar eru sagðar veita fólki falskt öryggi og bendir Neytendastofa þeim sem eiga slíkar grímur á að hætta notkun þeirra strax og henda þeim eða skila til Rekstrarvara. Þetta kemur fram á vef Neytendastofu en stofnunin sendi nokkur eintök af umræddum grímum til prófunar hjá löggildri prófunarstofu innan Evrópu. Samkvæmt niðurstöðum hennar falla grímurnar ekki nægilega vel að andliti notenda og myndast þar af leiðandi of mikið skilrúm á milli andlits og grímu. Umræddar grímur. Rekstrarvörur Jafnframt var gegnumflæði í gegnum efni grímunnar prófað, en í tilviki FFP2 persónuhlífa má gegnumflæði úðaefnis vera innan við 6%. Prófun á grímunum leiddi hins vegar í ljós að gegnumflæðið var langt yfir leyfileg mörk. Andlitsgrímur sem framleiddar eru sem persónuhlífar þurfa að uppfylla ákveðnar lágmarkskröfur sem umræddar grímu fullnægðu ekki að sögn Neytendastofu. „Eftir að Rekstrarvörum voru kynntar niðurstöður prófunarinnar ákvað fyrirtækið að hætta sölu strax á framangreindum andlitshlífum og innkalla þær af markaði. Í tilkynningu frá seljanda hafa um 30 pk. verið seldir á þessu ári,“ segir á vef stofnunarinnar.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Innköllun Neytendur Mest lesið Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Viðskipti innlent Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Samstarf Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Viðskipti erlent Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Viðskipti innlent Fleiri fréttir Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira