Segir að tilfinningin hafi verið svipuð og í stórtapinu fyrir Svíum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. mars 2021 17:46 Sveinn Aron Guðjohnsen skoraði sitt sjöunda mark fyrir U-21 árs landsliðið gegn Rússum í gær. vísir/vilhelm Sveinn Aron Guðjohnsen, framherji íslenska U-21 árs landsliðsins, segir að tilfinningin í leiknum gegn Rússlandi á EM gær hafi verið svipuð í stórtapinu fyrir Svíþjóð í undankeppninni.
Ísland tapaði, 4-1, fyrir Rússlandi í fyrsta leik sínum á EM í gær. Sveinn Aron skoraði mark Íslendinga sem áttu erfitt uppdráttar gegn sterku liði Rússa. Íslendingar héldu Rússum í skefjum framan af leik en rússneska liðið skoraði þrjú mörk á síðasta stundarfjórðungi fyrri hálfleik. Rússar bættu svo einu marki við í upphafi seinni hálfleiks áður en Sveinn Aron minnkaði muninn. „Mér fannst við vera með stjórn á varnarleiknum fram að fyrsta markinu sem þeir skoruðu. Þeir voru mikið með boltann en við erum vanir því. Ég var ekkert stressaður,“ sagði Sveinn Aron. Eftir að Íslendingar lentu undir sagði hann að tilfinningin hefði verið svipuð og í leiknum gegn Svíum í undankeppninni. Svíþjóð vann þann leik með fimm mörkum gegn engu. „Ég fékk svipaða tilfinningu og í leiknum á móti Svíþjóð. Við urðum óþolinmóðir, það kom stress í menn og þá fór allt í vesen á síðustu mínútunum í fyrri hálfleik,“ sagði Sveinn Aron. Ísland mætir Danmörku í öðrum leik sínum á EM á sunnudaginn. Leikurinn hefst klukkan 13:00 og verður í beinni textalýsingu á Vísi.
EM U21 í fótbolta 2021 Mest lesið Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Fótbolti Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Handbolti Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Fótbolti Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Íslenski boltinn Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Fótbolti Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Fótbolti Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Myndasyrpa: Sara Björk snýr heim Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Markaveisla í Lengjudeildinni Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar „Markmiðinu er náð“ Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Aron Einar heim í Þorpið? Náðu miðum á HM án þess að borga fyrir þá Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Lið Íslands gegn Úkraínu: Thelma, Sandra og Emilía fremstar Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Hjóluðu á HM frá Argentínu til Bandaríkjanna Þurfa að borga tvo milljarða til að fá José Mourinho Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Stuðningsmannahópar Celtic vilja ekki fá Keane Ekki Andabæjarútgáfa af norskri menningu HM-minning: Tapið sem fékk alla Brasilíu til að gráta og banna búninginn Tækifæri bjóðist í fjarveru Sveindísar í lykilleik dagsins Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Allur leikmannahópurinn saman í þjóðsöngvunum Þrjár opnunarhátíðir á HM og stórstjörnur á þeim öllum Grikkir gerðu Svíum grikk á lokasekúndum leiksins Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Óvíst hver tekur við af Schmeichel Sjá meira