Tveir greinst utan sóttkvíar og smitrakning teygir sig til tónleika í Hörpu Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 7. mars 2021 16:17 Harpa tónlistarhús. Vísir/Vilhelm Alls hafa tveir einstaklingar greinst með covid-19 innanlands síðustu daga sem voru utan sóttkvíar. Báðir hinna smituðu tengjast óbeint einstaklingi sem kom frá útlöndum og greindist jákvæður fyrir kórónuveirunni í seinni skimun þann 4. mars. Þá nær smitrakning einnig til tónleika sem fram fóru í Hörpu á föstudaginn.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Boðað hefur verið til upplýsingafundar sem hefst klukkan fimm í dag. Vísir greindi frá því fyrr í dag að í gær hafi starfsmaður Landspítala greinst með covid-19 og er gengið út frá því að viðkomandi sé með breska afbrigðið svokallaða. „Búið er að raðgreina upprunalega smitið og eitt afleitt smit og bæði reyndust með hið svokallaða breska afbrigði. Íslensk Erfðagreining vinnur nú að raðgreiningu fleiri sýna. Líklega munu nokkrir tugir manna þurfa að fara í sóttkví vegna ofangreindra smita. Eitt af þessum smitum tengist dag- og göngudeild Landspítala og er smitrakning og sýnataka í gangi þar. Hluta deildarinnar hefur verið lokað en að öðru leiti er ekki gert ráð fyrir að smitið muni hafa frekari áhrif á starfsemi spítalans, eins og staðan er. Ríflega þrjátíu einstaklingar, sjúklingar og starfsmenn eru komnir í sóttkví í tengslum við smitið,“ segir meðal annars í tilkynningunni. Skimun fyrir tónleikagesti fyrirhuguð Þá nær smitrakning einnig til tónleika sem fram fóru í Hörpu á föstudaginn klukkan átta, en samkvæmt upplýsingum fréttastofu var um að ræða tónleika með píanóleikaranum Víkingi Heiðari Ólafssyni. „Smitrakning nær einnig til tónleika í Hörpu 5. mars sem hófust klukkan 20:00 en þar eru einstaklingar skráðir í sæti sem auðveldar smitrakningu. Um tíu þeirra sem næst sátu einstaklingnum eru komnir í sóttkví. Á morgun, mánudag 8. mars, er fyrirhuguð skimun á öllum tónleikagestum. Þeir sem ætla að mæta í skimun í tengslum við tónleikana verða að bóka tíma í gegnum Mínar síður á Heilsuvera.is og velja þar „Tónleikagestur í Hörpu 5. Mars 2021.“ Þeir sem skrá sig fá sent strikamerki og tímasetningu fyrir skimun. Allir tónleikagestir eru eindregið hvattir til að mæta í skimun og jafnframt að huga vel að persónulegum smitvörnum og að takmarka samskipti við aðra þangað til að niðurstaða úr skimun liggur fyrir,“ segir í ennfremur tilkynningu frá almannavörnum. Harpa biðlar til tónleikagesta að mæta í skimun Í tilkynningu frá Hörpu segir að um leið og smit var rakið til gests sem sótti tónleika í Eldborgarsal á föstudagskvöldið hafi gengið hratt fyrir sig að kortleggja alla sem sátu nálægt viðkomandi og því auðveldara að rekja mögulega smithættu. Allir hafi setið í númeruðum sætum. „Það var mat rakningarteymis almannavarna að strangar sóttvarnarreglur og ábyrg framkvæmd viðburða í Hörpu geri það að verkum að einungis 10 einstaklingar sem sátu næst einstaklinginum þurftu að fara í sóttkví. Sem varúðarráðstöfun er verið nú að biðla til allra gesta á tónleikunum um að koma í skimun á mánudag. Ráðstafanir Hörpu varðandi ábyrgt viðburðahald á tímum covid eru margþættar. Þeirra á meðal eru vel skilgreind sóttvarnarhólf með aðskildum inngöngum og snyrtingum, stjórn á flæði fólks eins og við verður komið, allir gestir eru skráðir á kennitölu og símanúmer í númeruð sæti, skilyrðislaus grímunotkun, markviss upplýsingamiðlun til gesta, góð loftræsting, snertifletir eru sótthreinsaðir á milli viðburða og almenn þrif aukin. Persónubundnar sóttvarnir sem hver og einn ber ábyrgð eru svo lykilinn að því að hægt er að halda mikilvæga menningarviðburði þrátt fyrir að enn greinist stök tilfelli af covid-19 í samfélaginu. Þetta tilfelli sýnir mikilvægi þess að allir fylgi vel sóttvarnarreglum og stuðli þannig að ábyrgu viðburðahaldi. Eftir samráð við almannavarnir er ekki talin ástæða til að breyta neinu ekki hafa áhrif á viðburði sem eru framundan í Hörpu,“ segir í tilkynningunni frá Hörpu. Fréttin hefur verið uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Harpa Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Fleiri fréttir „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Forystan sé búin að missa klefann Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Sjá meira