Solskjær vill „finna neistann á ný“ en Neville sagði United liðið ganga í svefni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. mars 2021 10:00 Bruno Fernandes og félagar í Manchester United fundu sig ekki á Selhurst Park í gær og Portúgalinn var svekktur í leikslok. AP/Mike Hewitt Gary Neville sakaði sitt lið um að ganga í svefni í markalausu jafntefli í gærkvöldi en það hefur ekki verið mikið um mörk í leikjum United að undanförnu.
Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóri Manchester United, horfði upp á liðið sitt gera þriðja markalausa jafntefli í röð í gærkvöldi að þessu sinni á móti Crystal Palace á Selhurst Park. Tvö töpuð stig hjá Manchester United þýðir að liðið er nú fjórtán stigum á eftir toppliði Manchester City en nágrannarnir mætast á sunnudaginn kemur. Manchester United hefur ekki skorað í þremur síðustu leikjum sínum en ekki fengið mark á sig heldur. Solskjær var spurður út í gengi liðsins eftir leik. Man United are 'sleepwalking' into a battle for Champions League qualification, Gary Neville claims https://t.co/wrtqdb7HQh— MailOnline Sport (@MailSport) March 3, 2021 „Auðvitað er þetta áhyggjuefni,“ sagði Ole Gunnar Solskjær við breska ríkisútvarpið. „Þegar þú heldur marki þínu hreinu í þremur leikjum í röð þá ætti það að hjálpa þér að vinna leiki en við höfum ekki sýnt nægileg gæði,“ sagði Solskjær. „Við verðum bara að finna neistann aftur, leita uppi gæðin okkar og reyna að vinna leiki,“ sagði Solskjær. Þrátt fyrir aðeins þrjú stig út úr síðustu þremur leikjum þá er United ennþá í öðru sætinu, nú einu stigi á undan Leicester City. Gary Neville, fyrrum leikmaður Manchester United, sakaði liðið um að ganga í svefni og bjóða upp á frammistöðu sem mun gefa keppinautunum aukakraft. „Þetta var ekki gott kvöld fyrir United. Það skiptir ekki máli hver er við stjórnina. Liðið má ekki spila leiðinlegan bolta og þetta var leiðinlegt. Þeir ganga í svefni í þessum leikjum. Þeir eiga eftir að dragast niður í baráttuna um efstu fjögur sætin ef þeir passa sig ekkii,“ sagði Gary Neville á Sky Sports eftir leikinn.
Enski boltinn Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira