Hannes hættir og Spánverji sagður taka við Sindri Sverrisson skrifar 8. febrúar 2021 13:00 Hannes Jón Jónsson stýrir Bietigheim út þessa leiktíð en hættir í sumar. mynd/sgbbm.de Hannes Jón Jónsson hættir í sumar sem þjálfari þýska handknattleiksfélagsins Bietigheim. Þetta var tilkynnt á vef félagsins í kjölfar fjórða sigurs liðsins í röð.
Samkvæmt Bastian Spahlinger, framkvæmdastjóra Bietigheim, er um sameiginlega niðurstöðu að ræða. Gengi Bietigheim hefur verið ágætt undir stjórn Hannesar en ekki er ljóst hvað tekur við hjá honum. Spánverjinn Iker Romero er samkvæmt Stuttgarter Nachrichten líklegur til að taka við af Hannesi. Romero, sem er fertugur og var um árabil burðarás í spænska landsliðinu, hefur verið aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf frá árinu 2017 en aldrei starfað sem aðalþjálfari. Hannes tók óvænt við Bietigheim í febrúar 2019 eftir að hafa áður samið um að taka við liði Selfoss þegar Patrekur Jóhannesson léti af störfum um sumarið það ár. Hannes varð því að gefa það starf frá sér. Bietigheim var í fallsæti í efstu deild þegar Hannes tók við liðinu en náði sér betur á strik undir stjórn hans. Liðið féll þó á endanum á markatölu. Á síðustu leiktíð var Bietigheim í 3. sæti næstefstu deildar, tveimur stigum frá 2. sæti, þegar tímabilið var flautað af vegna kórónuveirufaraldursins. Tvö efstu liðin fóru upp. Nú er liðið hins vegar í 6. sæti með 16 stig, níu stigum á eftir Gummersbach sem er í 2. sæti. Einn Íslendingur er í leikmannahópi Bietigheim en það er markvörðurinn Aron Rafn Eðvarðsson.
Þýski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira