„Ég fíla ekki að mála mig of mikið, það fer mér ekkert eitthvað það vel. Þannig að ég set eiginlega aldrei á mig augnskugga, nema kannski einhverja ljósa liti.“
Hún leggur því mikla áherslu á húðvörurnar og ljómi og sólarpúður spilar þar stórt hlutverk. Sunneva passar mikið upp á raka húðarinnar en hún hefur lært mikið af systur sinni Rebekku, sem er lærður snyrtifræðingur.
Sápan best fyrir brúnirnar
Í menntaskóla gerði Sunneva samt þau mistök að nota alltaf kókosolíu til að þrífa af sér farðann, sem var vinsæl aðferð hér á landi um tíma.
„Ég lenti frekar illa í því í menntaskóla þegar kókosolíutrendið var. Ég notaði kókosolíu framan í mig og húðin mín stíflaðist. Þetta var fáránlegt, bara mín mistök.“
Sunneva er þekkt fyrir þykkar og fallegar augabrúnir og er einfalt leyndarmál á bak við þær.
„Ég hef prufað alveg margar vörur. Ég hef prófað sápu og bursta og svo hef ég prófað nokkrar vörur sem eru svona tilbúnar en sápan er það besta sem ég hef prófað fyrir fluffy brows.“

Sunneva ræðir einnig um vörurnar sem hún tæki sér með á eyðieyju, lykilinn á bak við ljómandi förðun, góð ráð til að förðunin sé falleg á myndum og aðferðina sem hún notar til að vera „sólbrún“ allt árið með brúnkuvörum.
Í þættinum gefa þær Heiður Ósk og Ingunn Sig líka góð ráð líkt og í hverjum þætti. Að þessu sinni talar Ingunn um „setting spray“ og Heiður talar um í hvaða röð hún notar hárvörurnar sínar. Hægt er að horfa þáttinn í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.
Heiður Ósk og Ingunn Sig eigendur Reykjavík Makeup School eru þáttastjórnendur Snyrtiborðsins með HI Beauty. Þær eru farðaðar með vörum frá YSL beauty, Urban Decay og Lancome. Hárið þeirra er stíliserað með John Frieda hárvörum. Þættirnir eru teknir upp í Reykjavík Makeup School og verða sýndir vikulega hér á Vísi.
Instagram: @the_hibeauty