Diallo orðinn leikmaður Man Utd Sindri Sverrisson skrifar 7. janúar 2021 16:26 Amad Diallo í leik með Atalanta í Meistaradeild Evrópu, gegn Midtjylland. Getty/Jonathan Moscrop Kantmaðurinn Amad Diallo er formlega orðinn leikmaður Manchester United en enska knattspyrnufélagið greindi frá þessu síðdegis.
Diallo er 18 ára gamall Fílabeinsstrendingur sem kemur til United frá Atalanta á Ítalíu. Greint var frá samkomulagi United við Atalanta um kaupverð 5. október síðastliðinn, á síðasta degi sumarfélagaskiptagluggans. Þá átti þó eftir að klára læknisskoðun, útvega atvinnuleyfi og semja við Diallo um kaup og kjör, sem er allt frágengið núna. Samningur Diallos við United er til sumarsins 2025. Á heimasíðu United kemur einnig fram að beðið sé eftir vegabréfsáritun fyrir Diallo. Þegar hún sé í höfn muni kappinn ferðast til Manchester og geti þá byrjað að æfa og spila með United-liðinu. Diallo á að baki 5 leiki með aðalliði Atalanta og skoraði hann í þeim eitt mark, í sínum fyrsta leik með aðalliðinu gegn Udinese í október 2019. „Sem félag þá höfum við fylgst með Amad í nokkur ár og eftir að hafa horft á hann sjálfur þá tel ég að hann sé einn efnilegasti og mest spennandi, ungi leikmaðurinn í dag,“ sagði Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóri United. Sagði hann Diallo hafa allt til brunns að bera til að verða mikilvægur leikmaður fyrir United á komandi árum.
Enski boltinn Mest lesið Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Fótbolti Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Handbolti „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Íslenski boltinn Ronaldo kveðst vera betri en Messi: „Vil ekki vera hógvær“ Fótbolti Umboðsmaður hótaði leikmanni með byssu Fótbolti Björgvin Páll hafi þaggað niður í efasemdaröddum Handbolti Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Körfubolti Alfreð klæddist kvennatreyjunni á leiknum við Ísland Handbolti Dagskráin í dag: Stórleikir í Meistaradeildinni Sport Fannst Tottenham spila eins og fjórðu deildarlið gegn Chelsea Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu glæsilegan einleik Ndiayes og jöfnunarmarkið frá Xhaka Fannst Tottenham spila eins og fjórðu deildarlið gegn Chelsea Yfirburðir Sunderland dugðu ekki til sigurs Telja United mun líklegra til að enda í sjöunda en öðru sæti Rekinn eftir aðeins fimm mánuði í starfi Ósammála um Gyökeres: „Hefðirðu verið ánægður með fjögur mörk?“ Eigandi Forest býður fram aðstoð eftir stunguárásina Gæti tekið við Úlfunum ellefu mánuðum eftir að hafa verið rekinn frá þeim Sjáðu mörkin úr kærkomnum sigri West Ham og tvennu Haalands Van Dijk frábiður sér letilega gagnrýni Rooneys Segir allt tal um leiðinlegan fótbolta hjá Arsenal heimskulegt Guardiola segir að dómararnir hafi verið á móti City í áratug „Örugglega nokkrir Fantasy-þjálfarar ósáttir“ „Haaland er þetta góður“ Annað tap spútnikliðsins kom í Manchester Loksins West Ham-sigur í London Úlfarnir ráku Pereira Engin klipping á næstunni: Miður sín en með augun á 8. desember Vara við því að „töfradrykkur“ Haaland geti valdið matareitrun Liverpool loks á sigurbraut á ný Pedro afgreiddi Tottenham Arsenal með sjö stiga forystu á toppnum Andri Lucas í beinni í Doc Zone: „Við setjum hann í skeytin“ Amad bjargaði stigi fyrir United Andri Lucas var kóngurinn á King Power í dag Liverpool féll síðast þegar liðið tapaði fimm í röð „Ég er ekki Schmeichel í dulargervi“ Arne Slot: „Þetta er síðasta spurningin sem ég átti von á“ Segir sönginn um Jota á tuttugustu mínútu hafa áhrif á leik Liverpool Haaland fór sem Jókerinn að versla bleyjur Sjá meira