Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14 í Skógarhlíð 14. Fundurinn verður í beinni útsendingu á Vísi, Stöð 2 Vísi og í textalýsingu hér að neðan.
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn og Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir munu fara yfir stöðu mála með tilliti til COVID-19 hér á landi.
Gestur fundarins verður Svanhildur Þengilsdóttir, forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu í Garðabæ.
Uppfært: Fundinum er lokið en klippuna má sjá að neðan.