Telja þeir nauðsynlegt að öll svæði landsins verða færð á fjórða stig, sem er hæsta stig viðbúnaðar vegna kórónuveirunnar, vegna nýja afbrigðisins sem hefur verið í mikilli útbreiðslu í landinu. Frá þessu er greint á vef Guardian.
Landinu hefur verið skipt upp í svæði og þau flokkuð eftir því hversu hröð útbreiðslan er og hversu mikið álag er á sjúkrahúsum á svæðinu. Fjórða stig er efsta stig, og felur það í sér að öllum ónauðsynlegum verslunum er lokað og fólki gert að halda sig heima nema það hafi ástæðu til þess að ferðast á milli staða vegna vinnu eða skóla.
Afbrigðið sem um ræðir hefur verið mikið til umfjöllunar, en það er talið allt að sjötíu prósent meira smitandi en önnur afbrigði veirunnar. Þó er ekkert sem bendir til þess að það valdi verri veikindum en önnur afbrigði þó það nái að dreifa sér hraðar.
Kennarasambönd í landinu hafa tekið undir hugmyndir vísindamannanna og sagt mikilvægt að skólar verði lokaðir til þess að sporna gegn frekari útbreiðslu. Vísbendingar séu um að það sé sérstaklega smitandi í börnum.

Ferðast með ferðalöngum frá Bretlandi
Undanfarna daga hefur verið greint frá því í fjölmiðlum að afbrigðið hafi greinst á fleiri stöðum og tengjast öll tilfellin fólki sem nýlega hefur komið frá Bretlandi. Í gær var greint frá því að það hefði fundist í Frakklandi, Spáni og Svíþjóð en áður hafði það verið staðfest í Danmörku, Hollandi, Ástralíu og Japan.
Þá hefur afbrigðið tvisvar fundist við landamæraskimun hér á landi, síðast þann 20. desember síðastliðinn.
Bólusetningar hófust fyrr í mánuðinum í Bretlandi og munu þær hefjast í aðildarríkjum Evrópusambandsins í dag. Á þriðjudag mun Ísland byrja að bólusetja fyrstu forgangshópa með þeim skömmtum sem væntanlegir á mánudag.
Smitum hefur þrátt fyrir það farið ört fjölgandi í Bretlandi og fjölgaði þeim um 25 prósent milli vikna. Hertar aðgerðir tóku gildi víða í gær á þeim svæðum sem eru á fjórða stigi viðbúnaðar og munu þær vera í gildi yfir hátíðirnar.