Samfélagsmiðlastjarnan Sólrún Diego gaf út bókina Skipulag núna fyrir jólin þar sem hún deilir ýmsum ráðum varðandi skipulag heimilisins.
Hefur þú alltaf verið skipulögð?
„Nei, alls ekki. Ég setti bara miklar kröfur á sjálfa mig þegar ég fór að búa og síðar að eignast börn, það krafist mikils skipulags. Mig langaði alltaf að vera mjög skipulögð og það blundaði alltaf í mér að bæta mig á mörgum sviðum. En þetta kom ekkert á einni nóttu. Það tók tíma að læra inn á nýjar venjur svo lífið gæti verið auðveldara.“
Ertu líka svona skipulögð þegar kemur að ástinni og stefnumótum?
„Já, ætli það ekki, segir Sólrún og hlær.“

Hér fyrir neðan svarar Sólrún spurningum í viðtalsliðnum Ást er:
Uppáhalds rómantíska kvikmyndin mín er: Ég verð klárlega að segja Notebook.
Fyrsti kossinn: Hann gerðist þegar ég var í kringum sextán ára minnir mig.
Uppáhalds ástarsorgar power-ballaðan mín er: Adele er kárlega með uppáhalds lögin mín þar. Alveg nokkur sem koma til greina.
Lagið „okkar“ er: Það mun vera lagið sem var sungið í brúðkaupinu okkar. Það heitir Kærleiksvísa og eitt fallegasta lagið að mínu mati.
Mér finnst rómantískt stefnumót vera: Ég persónulega elska að sækja mat heim, spjalla og horfa svo á góða mynd eða þátt upp í sófa.
Uppáhaldsmaturinn minn: Úff, erfitt val. Ef ég þyrfti að velja eitt þá væri það líklegast súrdeigspizzan hans Frans.
Fyrsta gjöfin sem ég gaf kærastanum mínum: Ég gaf honum úr í tuttugu og fimm ára afmælisgjöf. Það var alveg smá pressa að byrja saman korter í - tuttugu og fimm.
Fyrsta gjöfin kærastinn minn gaf mér: Heyrðu, hann gaf mér nærföt á Valentínusardaginn þegar við vorum að byrja saman.
Ég elska að: Eiga notalegar stundir með fólkinu mínu.

Maðurinn minn er: Hann er einfaldlega bestur og ég bið ekki um meira. Hann ber virðingu fyrir öllu og öllum.
Rómantískasti staður á landinu er: Klárlega Akureyri, svo mikil kyrrð og friður að fara þangað.
Ást er: Virðing. Að elska og að vera elskaður.
