Ísak tilefndur sem besti ungi leikmaðurinn í Svíþjóð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. desember 2020 15:30 Ísak Bergmann Jóhannesson í leik með U-21 árs landsliðinu. vísir/vilhelm Ísak Bergmann Jóhannesson, leikmaður Norrköping, er tilnefndur sem besti ungi leikmaður sænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.
Keppni í sænsku úrvalsdeildinni í lauk í gær en Ísak og félagar í Norrköping lutu þá í lægra haldi fyrir Helsingborg, 3-4. Ísak lagði upp fyrsta mark Norrköping en það var níunda stoðsending hans á tímabilinu. Hann skoraði einnig þrjú mörk. Aðeins tveir leikmenn gáfu fleiri stoðsendingar í sænsku úrvalsdeildinni á tímabilinu en Ísak. Þeir Gustav Ludwigson hjá Hammarby og samherji Ísaks hjá Norrköping, Sead Haksabanovic, lögðu báðir upp ellefu mörk. Auk Ísaks eru þeir Anel Ahmedhodzic (Malmö) og Astrit Selmani (Varberg) tilnefndir sem besti ungi leikmaður tímabilsins. Þeir eru báðir talsvert eldri en Ísak sem er aðeins sautján ára. Selmani er 23 ára og Ahmedhodzic 21 árs. Allsvenskans Stora Pris 2020 här är de nominerade till Årets unga spelare! #Allsvenskan pic.twitter.com/hEjQYo3RpK— Allsvenskan (@AllsvenskanSE) December 7, 2020 Ísak hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína með Norrköping og verið orðaður við ýmis stórlið í Evrópu. Hann hjálpaði íslenska U-21 árs landsliðinu að komast á EM 2021 og lék sinn fyrsta leik fyrir A-landsliðið gegn Englandi í síðasta mánuði. Ísak lék 28 af 30 leikjum Norrköping í sænsku úrvalsdeildinni á nýafstöðnu tímabili, þar af 25 í byrjunarliði. Norrköping endaði í 6. sæti deildarinnar.
Sænski boltinn Mest lesið Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Finnur til með Arnari Handbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Íhugaði að hætta: „Ekki stóra markmiðið heldur hvað maður lærir á leiðinni“ Sport Elísabet tjáir sig: Grátlega nálægt draumnum í þrígang Fótbolti Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Íslenski boltinn Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Íslenski boltinn Fleiri fréttir Everton - Chelsea | Heimamenn ekki tapað í síðustu tíu leikjum Elísabet tjáir sig: Grátlega nálægt draumnum í þrígang Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Syndaaflausn Infantino: „Páfinn yrði himinlifandi“ Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Bjarni Jó hættur Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Infantino baðst afsökunar en neitaði að svara fjölmiðlum Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Fallegt Evrópukvöld fyrir Íslendingana Bournemouth nýtur lífsins á nýjum slóðum en Willum spilaði lítið Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Mikael meiddur af velli í Belgíu Orri nálægt sigurmarki á 90 sekúndum Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Vill draga Ronaldo aftur inn í landsliðið Sjá meira