Þúsundþjalasmiðurinn, ævintýramaðurinn og hlaðvarpskóngurinn Helgi Jean er Einhleypa Makamála þessa vikuna. Sjálfur lýsir hann sér sem hógværum, brilljant snilling en vinir hans segja hann besta vin heimsins.
Þrátt fyrir Covid faraldurinn segist Helgi hafa nóg fyrir stafni þessa dagana og mörg spennandi verkefni framundan.
„Ég er að klára að gera upp húsið mitt og er í leiðinni að gera þáttröð um framkvæmdina sem ég sýni á netinu. Með þessu held ég rafræn bingó og pub-quiz og er einnig að klára að skrifa bók um andlega ferðalagið,“ segir Helgi en ásamt þessu heldur hann úti einu vinsælasta hlaðvarpi landsins, hlaðvarpinu Hæ hæ, með vini sínum Hjálmari Erni.
En hvað með stefnumótalífið. Hvernig hefur það verið að vera einhleypur á tímum Covid?
Það er geggjað að vera einhleypur á Covid tímum - og ég hef farið á stefnumót en alltaf með grímu. Samt ekki úr taui.

Fáum að kynnast Einhleypu vikunnar betur.
Nafn? Helgi Jean Claessen.
Gælunafn eða hliðarsjálf? Fyrirtækið mitt heitir Mister Fabjúlus.
Aldur í árum? 38 ára gamall.
Aldur í anda? 38 ára gamall.
Menntun? Tvær MSc gráður í markaðsfræði og stjórnun.
Hvað myndi sjálfsævisagan þín heita? Helga Hjartað.
Guilty pleasure kvikmynd? When Harry met Sally.
Varstu skotinn í einhverjum frægum þegar þú varst yngri? Já, Pamelu Anderson.
Talar þú stundum um þig í þriðju persónu? Já - aðallega við sjálfan mig.
Syngur þú í sturtu? Að sjálfsögðu - einn besti sturtusöngvari landsins.
Uppáhaldsappið þitt? Instagram.
Ertu á Tinder? Búinn að vera á Tinder í tvo mánuði núna - verð allavega eina viku í viðbót.
Hvernig myndir þú lýsa þér í þremur orðum? Brilljant snillingur og hógvær.

Hvernig myndu vinir þínir lýsa þér í þremur orðum? Besti vinur heimsins.
Hvaða persónueiginleikar finnast þér heillandi? Að geta skipt milli stóískra viðbragða við erfiðum tíðindum og svo ærslafenginnar leikgleði af því lífið er ekki svona alvarlegt.
Hvaða persónueiginleikar finnast þér aldeilis ekki heillandi? Neediness. Þá dey ég.
Hvaða dýr værir þú ef þú værir dýr? Ljón og dreki. Ljónadreki.
Ef þú mættir velja einhverja þrjá einstaklinga úr sögunni (lífs eða liðna) til að bjóða í kvöldmat og spjall, hverja myndir þú velja? Hjálmar Örn, Sölva Tryggva og Arnar tökumann.
Býrðu yfir einhverjum leyndum hæfileikum? Ég er mjög athyglissjúkur. Veit samt ekki hvort það sé hæfileiki, hvað þá leyndur.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Taka upp hlaðvarp með Hjálmari.

Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Finna nótur og kvittanir og koma því á Bjarna.
Ertu A eða B týpa? Ég hélt ég væri B týpa en svo kom í ljós að ég var bara með lífið í óreiðu.
Hvernig viltu eggin þín? Hrærð.
Hvernig viltu kaffið þitt? Ég hætti í kaffi og drekk núna geggjað Matcha te frá Tefélaginu, með smá 100% kakói útí.
Þegar þú ferð út að skemmta þér, á hvaða staði ferðu? Á kakódansa í allskonar musterum.

Ef einhver kallar þig sjomli? Knús og kram.
Draumastefnumótið? Öll sem enda með óléttu.
Einhver söngtexti sem þú hefur sungið vitlaust? Maður segir ekki vitlaust heldur rangt.
Hvað horfðir þú á síðast í sjónvarpinu? Ég er að endurhorfa á Breaking Bad sem er erfitt fyrir sálarlífið.

Hvaða bók lastu síðast? Bókina Radical Honesty - hún er sturluð.
Hvað er Ást? Nafn á lagi eftir Pál Óskar eða Ragnheiði Gröndal.
https://media.giphy.com/media/UAlqOjdIpCPn2/giphy.gif
Fyrir áhugasama er hægt að nálgast Instagram prófíl Helga Jean hér.