Ný veiðibók frá Sigga Haug Karl Lúðvíksson skrifar 13. október 2020 09:23 Siggi Haugur er að senda frá sér nýja bók fyrir alla áhugamenn um
Veiði
Það er líklega óhætt að segja að allir Íslenskir fluguveiðimenn hafi á einhverjum tímapunkti sett undir flugu sem Sigurður Héðinn hefur hannað. Betur þekktur sem Siggi Haugur er hann líklega einn þekktasti fluguhönnuður landsins en eftir hann liggja margar gjöfular flugur sem eru fyrir löngu orðnar með þeim gjöfulustu í veiðibókum landsins og þar er líklega Haugurinn sú frægasta. Siggi hefur líka verið duglegur við skriftir síðustu tvö ár en í fyrra gaf hann hann út bókina "Af flugum, löxum og mönnum" sem var afskaplega vel tekið af unnendum stangveiða enda bókin vönduð og nálgaðist efnið af mikilli alúð. Siggi Haugur við væsinnMynd: Nils Folmer Sigurður Héðinn hefur greinilega ekki setið auðum höndum þetta árið því samhliða hnýtingum, opnun verslunar og leiðsögn hefur hann skrifað nýja bók sem heitir "Sá stóri, sá missti og sá landaði" en bókin fór í prentun í gær. Veiðivísir fékk þann heiður að lesa rafræna útgáfu af bókinni og það verður ekki sett í fá orð að lýsa því hversu vel hefur tekist með bókina. Farið er yfir atriði sem allir veiðimenn geta lært eitthvað af og kaflar eins og "Hvers vegna tekur laxinn", "Atferli stórra fiska í töku", "Að veiða undan sól" og "Losa úr fiski" stikla á því sem veiðimenn þurfa að vita og það er tekið á mörgum atriðum sem veiðimönnum eru hugleikin við bakkann. Það er góður kafli um flugur, leyniflugur, skylduflugur í boxið og auðvitað er farið í hnýtingar. Í bókinni má finna fræðslu um tauma, línur, vöðlur og háfa svo fátt eitt sé nefnt. Heilt yfir er þetta virkilega fræðandi og skemmtileg bók, ekki bara fyrir veiðimenn og veiðikonur heldur líka þá sem vilja einfaldlega lesa vel skrifaða bók um eitt vinsælasta áhugamál Íslendinga. Vel gert Siggi!
Stangveiði Mest lesið Hreindýrakvóti 2012 verður 1009 dýr Veiði Veiðivísir gefur Veiðikortið á Facebook Veiði Skutulsveiðar á eldislaxi eins og brandari Veiði Lokatölur úr Veiðivötnum Veiði Veiddi 3.2 kg bleikju í Hlíðarvatni Veiði Hítará fer í útboð Veiði Stórlax á lokasprettinum í Eystri Rangá Veiði Fyrstu laxarnir sjást í Langá Veiði Ung og efnileg veiðikona með stórlax úr Elliðaánum Veiði Lífleg veiði við Hraun í Ölfusi Veiði