Starfsmenn Krónunnar í Flatahrauni í sóttkví eftir smit starfsmanns Atli Ísleifsson skrifar 6. október 2020 09:18 Verslun Krónunnar í Flatahrauni. Krónan
Fimm starfsmenn Krónunnar í Flatahrauni í Hafnarfirði hafa verið sendir í sóttkví eftir að starfsmaður greindist með Covid-19. Er um að ræða alla þá starfsmenn sem voru í samskiptum við umræddan starfsmann. Í tilkynningu frá Krónunni segir að athygli sé vaktin á því að starfsmaðurinn hafi ekki verið í nánu samneyti við viðskiptavini. „Verslunin opnar ekki fyrr en 11 í dag því unnið er að því að sótthreinsa verslunina hátt og lágt. Starfsmenn úr öðrum verslunum Krónunnar koma til með að leysa þá af sem fóru í sóttkví,“ segir í tilkynningunni. Fyllstu varúðar gætt Ástu S. Fjeldsted, framkvæmdastjóra Krónunnar, segir að lögð sé áhersla á að fylgja öllum ráðleggingum rakningateymis og fyllstu varúðar sé gætt. Viðkomandi starfsmaður hafi unnið við áfyllingar og hafi því ekki verið á kassa eða í öðrum samneyti við viðskiptavini. „Unnið er að því að sótthreinsa verslunina hátt og lágt til að tryggja öryggi starfsmanna og viðskiptavina okkar. Við viljum þakka rakningarteyminu og starfsfólki okkar fyrir snör viðbrögð og gott samstarf, sem og viðskiptavinum fyrir biðlund og samvinnu á þessum flóknu tímum. Krónan heldur áfram að leggja áherslu á sóttvarnir í verslunum sínum og minnir viðskiptavini á að handspritt er að finna víða í öllum verslunum okkar,“ er haft eftir Ástu. Fréttin hefur verið uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Verslun Hafnarfjörður Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Fleiri fréttir „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Sjá meira