Skagamenn hafa skorað tíu mörkum meira en þegar þeir urðu síðast meistarar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. september 2020 18:15 Tryggvi Hrafn Haraldsson hefur skorað sex af tólf mörkum sínum í Pepsi Max deild karla á síðustu sjö dögum. Vísir/Bára Skagamenn hafa heldur betur skorað mörk í Pepsi Max deild karla í sumar eða 39 mörk í fyrstu 17 leikjum sínum. Samanburðurinn við síðustu Íslandsmeistara Skagamaður er fróðlegur. ÍA skoraði tvö mörk í jafntefli á móti Víkingum í Pepsi Max deild karla í gær og hefur þar með skorað tvö mörk eða meira í fimm leikjum í röð og enn fremur í átta af síðustu níu deildarleikjum. Samtals hafa Skagamenn skorað 39 mörk í 17 leikjum eða 2,3 mörk að meðaltali í leik. Það er aðeins topplið Valsmanna sem hefur skorað fleiri mörk og ÍA er meira segja með sjö mörkum meira en liðið í þriðja sætið. Tryggvi Hrafn Haraldsson er þegar kominn með tólf mörk en sex þeirra hafa komið í síðustu þremur leikjum. Tryggvi Hrafn er búinn að skora tvennu í þremur síðustu leikjum Skagamanna. Þetta er það langmesta sem Skagamenn hafa skorað á einu tímabili á þessari öld og í raun flest mörk síðan að liðið skoraði 42 mörk sumarið 1997. Það er athyglisvert að skoða markaskor Skagamanna í sumar í samanburði við markaskor liðsins sumarið 2001. Sumarið 2001 er einmitt síðasta Íslandsmeistarasumar Skagamanna. ÍA-liðið skoraði 29 mörk í 18 leikjum sumarið 2001 en það dugði til sigurs í mótinu. Skagaliðið í sumar hefur spilað leik minna en meistaraliðið frá 2001 en hefur samt sem áður þegar skorað tíu mörkum meira. Þar munaði mestu um það að Skagamenn fengu aðeins á sig 16 mörk en Skagaliðið í sumar hefur sótt boltann 39 sinnum í markið sitt. Flest mörk Skagamanna á einu tímabili í efstu deild á þessari öld: 39 mörk - 2020 (17 leikir, 5 leikir eftir) 34 mörk - 2007 (18 leikir) 32 mörk - 2012 (22 leikir) 31 mark - 2015 (22 leikir) 29 mörk - 2001 (18 leikir) 29 mörk - 2002 (18 leikir) Pepsi Max-deild karla ÍA Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira
Skagamenn hafa heldur betur skorað mörk í Pepsi Max deild karla í sumar eða 39 mörk í fyrstu 17 leikjum sínum. Samanburðurinn við síðustu Íslandsmeistara Skagamaður er fróðlegur. ÍA skoraði tvö mörk í jafntefli á móti Víkingum í Pepsi Max deild karla í gær og hefur þar með skorað tvö mörk eða meira í fimm leikjum í röð og enn fremur í átta af síðustu níu deildarleikjum. Samtals hafa Skagamenn skorað 39 mörk í 17 leikjum eða 2,3 mörk að meðaltali í leik. Það er aðeins topplið Valsmanna sem hefur skorað fleiri mörk og ÍA er meira segja með sjö mörkum meira en liðið í þriðja sætið. Tryggvi Hrafn Haraldsson er þegar kominn með tólf mörk en sex þeirra hafa komið í síðustu þremur leikjum. Tryggvi Hrafn er búinn að skora tvennu í þremur síðustu leikjum Skagamanna. Þetta er það langmesta sem Skagamenn hafa skorað á einu tímabili á þessari öld og í raun flest mörk síðan að liðið skoraði 42 mörk sumarið 1997. Það er athyglisvert að skoða markaskor Skagamanna í sumar í samanburði við markaskor liðsins sumarið 2001. Sumarið 2001 er einmitt síðasta Íslandsmeistarasumar Skagamanna. ÍA-liðið skoraði 29 mörk í 18 leikjum sumarið 2001 en það dugði til sigurs í mótinu. Skagaliðið í sumar hefur spilað leik minna en meistaraliðið frá 2001 en hefur samt sem áður þegar skorað tíu mörkum meira. Þar munaði mestu um það að Skagamenn fengu aðeins á sig 16 mörk en Skagaliðið í sumar hefur sótt boltann 39 sinnum í markið sitt. Flest mörk Skagamanna á einu tímabili í efstu deild á þessari öld: 39 mörk - 2020 (17 leikir, 5 leikir eftir) 34 mörk - 2007 (18 leikir) 32 mörk - 2012 (22 leikir) 31 mark - 2015 (22 leikir) 29 mörk - 2001 (18 leikir) 29 mörk - 2002 (18 leikir)
Flest mörk Skagamanna á einu tímabili í efstu deild á þessari öld: 39 mörk - 2020 (17 leikir, 5 leikir eftir) 34 mörk - 2007 (18 leikir) 32 mörk - 2012 (22 leikir) 31 mark - 2015 (22 leikir) 29 mörk - 2001 (18 leikir) 29 mörk - 2002 (18 leikir)
Pepsi Max-deild karla ÍA Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira