Gunnar og Rúnar sáu til að Ribe-Esjberg landaði loks sigri Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 18. september 2020 20:00 Rúnar Kárason í leik með íslenska landsliðinu. vísir/getty
Rúnar Kárason og Gunnar Steinn Jónsson sáu til þess að Ribe-Esjberg landaði sigri gegn Lemvig í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Leiknum lauk með þriggja marka sigri gestanna, 30-33 lokatölur. Þá léku Elín Jóna Þorsteinsdóttir og Steinunn Hansdóttir með Vendsyssel sem mátti þola tveggja marka tap. Heimamenn voru einu marki yfir í fyrri hálfleik sem hafði verið einkar jafn, staðan þá 16-15. Í þeim síðari náðu gestirnir góðum tökum á leiknum og komust yfir um miðbik síðari hálfleiks, létu þeir þá forystu aldrei af hendi og unnu á endanum þriggja marka sigur. Var þetta fyrsti sigur liðsins á tímabilinu en liðið hafði tapað fyrstu þremur leikjum sínum. Gunnar Steinn skoraði eitt mark á meðan Rúnar Kárason skoraði fjögur í liði Ribe-Esjberg. Ribe-Esjberg er nú í 11. sæti deildarinanr með 2 stig eftir fjóra leiki. Í úrvalsdeild kvenna í Danmörku voru tveir Íslendingar til viðbótar í eldlínunni. Þær Elín Jóna Þorsteinsdóttir og Steinunn Hansdóttir léku báðar í 20-18 tapi Vendsyssel gegn Herning-Ikast. Elín Jóna varði eins og berserkur í marki Vendsyssel. Alls varði hún 14 skot sem gerði 41 prósent markvörslu. Það dugði því miður ekki til í kvöld. Þá skoraði Steinunn eitt mark. Vendsyssel er sem stendur í neðsta sæti með aðeins eitt stig en liðið er nýliði í úrvalsdeildinni.
Handbolti Danski handboltinn Mest lesið Sakna Orra enn sárt og vandræðin aukast Fótbolti Fimmtugur og fúlskeggjaður Svíi stal senunni á HM Sport Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Handbolti Dýrmætur tími með börnunum áður en alvaran tekur við Fótbolti Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Álftanes - Tindastóll 78-137 | Metin slegin í stórsigri Stólanna Körfubolti Algjörir yfirburðir Noregs halda áfram Handbolti „Held að ég gæti ekki hætt í fótbolta“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Salah, Doc Zone og auðveld bráð Arsenal Sport Fleiri fréttir Stjarna Guðjóns fer varlega og mun ekki mæta Íslandi á EM Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Algjörir yfirburðir Noregs halda áfram Langri þrautagöngu Þýskalands lokið Boða uppsagnir hjá Íslendingaliðinu Rúnar snýr aftur í þýsku úrvalsdeildina „Þetta var afleitt, ég segi bara afsakið“ „Má ekki gleyma kónginum á Akureyri“ Haukur í ham gegn sveinum Guðjóns Vals Framarar hefndu loks með stórsigri KA - Afturelding 22-28 | Öruggt hjá gestunum á Akureyri Gísli meiddist en fór aftur inn á völlinn: „Þurfti að tala læknana svolítið til“ Orri með þrjú mörk er Sporting sendi skýr skilaboð Danir úr leik á HM Taphrina HK á enda eftir dramatískar lokasekúndur Tíu íslensk mörk er Magdeburg vann Melsungen Haukar jafna Val að stigum á toppi deildarinnar FH sótti sigur í greipar ÍBV og Valur vann spennutrylli Benedikt með fjögur mörk í öruggum sigri Holland áfram í undanúrslit og mætir Noregi Norska landsliðið flaug áfram í undanúrslit Stórleikur Birgis Steins í sex marka sigri Fjögur mörk Elvars dugðu skammt í þungu tapi Þýska stálið flaug áfram í undanúrslit Toppkonur Íslands á HM í handbolta 2025 Kom færandi hendi eftir að hafa skotið ljósmyndarann niður Stjörnur Kolstad þurfa að taka á sig launalækkun Átta liða úrslitin á HM klár Ótrúlegir yfirburðir Noregs og Danir enduðu líka á toppnum Ýmir lenti í íslensku hakkavélinni og enn bíður Blær Sjá meira