Gæludýr.is: Fimmta verslunin opnuð og nú á Norðurlandi Gæludýr.is 10. september 2020 08:45 Gæludýr.is fagnar 10 ára afmæli og hefur nú opnað verslun að Baldursnesi 8 á Akureyri.
Ingibjörg Salóme Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Gæludýr.is skrifar: Við eigum 10 ára afmæli í ár og erum að opna fimmtu verslunina okkar. Fyrir eru verslanir á Smáratorgi í Kópavogi, Bíldshöfða og Fiskislóð í Reykjavík ásamt verslun að Helluhrauni í Hafnarfirði. Síðustu ár höfum við haft augun opin fyrir hentugu húsnæði á Akureyri enda mikið af viðskiptum þaðan í gegnum vefverslunina okkar. Ingibjörg Salóme Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Gæludýr.is. Það var svo fyrir fáeinum mánuðum sem við heyrðum af húsnæðinu á Baldursnesi 8 og eftir skoðun sáum við að þetta væri húsnæðið sem uppfyllti okkar kröfur um stærð og aðgengi. Að auki var svo pláss fyrir fyrirlestrarsal þar sem verður boðið upp á fyrirlestra og dýratengd námskeið. Snyrtistofa Gæludýr.is verður svo með ferðasnyrtistofu sem mun koma reglulega norður og bjóða snyrtingar á hundum og köttum. Húsnæðið er í heild hátt í 1000 fm2. Viðbrögðin hafa verið framar okkar björtustu vonum og höfum við fundið mikinn meðbyr frá gæludýraeigendum á Norðurlandi og spennu fyrir opnuninni og hlökkum við afar mikið til komandi missera. Opnunartilboð Í tilefni af opnuninni á Baldursnesi ákváðum við að bjóða vegleg opnunartilboð fyrstu vikuna ásamt því að vera með kynningar og ráðgjöf um þjálfun, umhirðu og næringu og verður því nóg um að vera fyrstu dagana og reglulega svo í framtíðinni. Mikið af nýjum vörum Dýraeigendur gera sífellt meiri kröfur um gæðavörur fyrir dýrin sín og við höfum lagt okkur mikið fram um að geta boðið gæludýraeigendum upp á framúrskarandi vörur í öllum gæðaflokkum. Síðustu mánuði höfum við verið að fá inn nokkurt magn af nýjum vörum og vörulínum. Má þar nefna Happy Dog og Happy Cat fóðurlínurnar frá Þýskalandi. Fóðrið hefur verið hagstætt í innkaupum svo við getum látið okkar viðskiptavini njóta þess að kaupa gæðafóður á frábæru verði. Í ágúst fengum við svo heimsþekktar feldvörur fyrir hunda og ketti frá Chris Christensen en þar má finna allt frá sjampóum til notkunar dags daglega, yfir í sérhæfðari feldvörur fyrir sýningarhunda og -ketti. Ný fiskabúr í öllum stærðum frá Ciano hafa svo fengið afar góðar viðtökur. Saga Gæludýr.is Gæludýr.is var í upphafi stofnað sem vefverslun en fljótlega kom í ljós mikil þörf fyrir hefðbundna verslun. Fyrsta yfirlýsta lágvöruverðsverslunin með gæludýravörur var svo opnuð í Skútuvogi 13. Í lok október 2010 var versluninni í Skútuvogi lokað og 500 fm2 stórmarkaður með gæludýravörur opnaður á Korputorgi. Ári síðar opnaði verslunin á Smáratorgi sem er stærsta verslun Gæludýr.is í dag. 2017 var opnað í Hafnarfirði, 2018 á Granda og svo núna í september á Akureyri. Yfirlýst markmið er að bjóða hagstætt verð en við höfum verið ótrúlega heppin með hversu mikinn áhuga starfsfólkið okkar hefur á gæludýrum og hversu mikið það leggur sig fram við að læra meira um dýrin og að þjónusta eigendur þeirra. Nánari upplýsingar er að finna á Gæludýr.is. Verslunin er einnig á facebook.
Gæludýr Akureyri Mest lesið Gerðu sumarfríið að heitasta ástarævintýri ársins Lífið Í hennar anda að vera ein slakasta brúður sögunnar Lífið Unnur Birna og Pétur keyptu einbýlishús í Garðabæ Lífið Katrín Odds og Þorgerður eignuðust sólardreng Lífið Eftirrétturinn sem Espresso Martini-aðdáendur elska Lífið Ragga Gísla og Hipsumhaps á Innipúkanum sem færir sig um set Lífið „Þegar ég hitti þá fyrst pissaði ég á mig“ Lífið Væb fara í tónleikaferð um Evrópu Lífið Uppáhalds sumardrykkur Gerðar: „Ég fæ ekki nóg“ Lífið Mælir með að geyma snípinn þar til síðast Lífið Fleiri fréttir Aukasýningu bætt við á vinsælustu ABBA sýningu heims Iðnaðarmaður ársins fer í frí – sjáumst að ári! Bylgjulestin tók þátt í Bíladögum - myndaveisla Myndband við Þjóðhátíðarlagið frumsýnt á Vísi Iðnaðarmaður ársins hlustar á IceGuys til að koma sér í stuð Bylgjulestin verður í stuði á Bíladögum á Akureyri Myndaveisla frá Hveragerði þar sem Bylgjulestin var í beinni Ferð þú til Ástralíu með Bondi Sands og KILROY? Stálheppinn viðskiptavinur N1 vann frítt flug í heilt ár með PLAY Einn heppinn vinnur frítt flug í heilt ár með PLAY Bylgjulestin brunar af stað inn í sumarið Vinsælasta ABBA sýning heims kemur til Íslands Unga fólkið sækir í svissnesk TAG Heuer A Country Night in Nashville kemur í Hörpu Orsakir flösu og áhrifarík meðferð „Það er alls ekki í tísku að brenna“ Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þorlákur er kominn í úrslit Heilög tvenna fyrir hlauparann! Yfir tvö hundruð tryllitæki sýnd um helgina Iðnaðarmaður ársins 2025 - Máni er kominn í úrslit Bakið er hætt að hefna sín Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þorleifur er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 - Eyjólfur er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 – Róbert er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þór er kominn í úrslit Með andlit sem fleiri en bara mæður þeirra geta elskað Iðnaðarmaður ársins 2025 - Elsa er komin í úrslit Iðnaðarmaður ársins - Davíð Már er kominn í úrslit Stuðla að heilbrigði með lífrænum barnamat Komdu með í ævintýri til Ítalíu Sjá meira