Svona var áttundi upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Ritstjórn skrifar 8. mars 2020 13:00 Upplýsingafundurinn verður sendur út í beinni útsendingu klukkan 14 í dag. Vísir/vilhelm Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis bjóða til upplýsingafundar í Björgunarmiðstöðinni að Skógarhlíð 14 klukkan 14 í dag. Fundurinn verður í beinni útsendingu á Vísi og verður einnig sendur út á Stöð 3. Á fundinum í dag munu Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, Þórólfur Guðnason, sóttvarnarlæknir, og Alma D. Möller, landlæknir fara yfir stöðu mála vegna kórónuveirufaraldursins. Á fundinum verður einnig Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistu og formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Hann mun ræða aðgerðir á Hrafnistu vegna kórónuveirunnar og þær áherslur sem hafa þarf í huga þegar kemur að viðkvæmum hópum. Blaðamenn munu sem fyrr fá tækifæri til að bera fram spurningar. Vísir verður í beinni útsendingu frá fundinum en hann verður einnig táknmálstúlkaður. Líkt og síðustu daga er tilefni fundarins fyrst og fremst að stuðla að öflugri upplýsingagjöf til fjölmiðla og þar með til almennings.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis bjóða til upplýsingafundar í Björgunarmiðstöðinni að Skógarhlíð 14 klukkan 14 í dag. Fundurinn verður í beinni útsendingu á Vísi og verður einnig sendur út á Stöð 3. Á fundinum í dag munu Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, Þórólfur Guðnason, sóttvarnarlæknir, og Alma D. Möller, landlæknir fara yfir stöðu mála vegna kórónuveirufaraldursins. Á fundinum verður einnig Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistu og formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Hann mun ræða aðgerðir á Hrafnistu vegna kórónuveirunnar og þær áherslur sem hafa þarf í huga þegar kemur að viðkvæmum hópum. Blaðamenn munu sem fyrr fá tækifæri til að bera fram spurningar. Vísir verður í beinni útsendingu frá fundinum en hann verður einnig táknmálstúlkaður. Líkt og síðustu daga er tilefni fundarins fyrst og fremst að stuðla að öflugri upplýsingagjöf til fjölmiðla og þar með til almennings.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Upplýsingafundir almannavarna og landlæknis Mest lesið Spennan magnast fyrir fundi sem óvænt á að fresta Innlent Tíu ára drengur lést eftir bílslys á Ítalíu Erlent Leit við Meradali í snælduvitlausu veðri Innlent Lygileg atburðarás í Landsbankanum Innlent Hætta leitinni í Meradölum Innlent Innan marka að kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Innlent Lögregla hafi hálfpartinn „hrökklast frá“ Innlent Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Erlent Verið að athuga frekari þvingunaraðgerðir Innlent „Svarta ekkjan“ fannst látin Erlent Fleiri fréttir Framkvæmdastjóri Hagkaups furðar sig á heimsókn lögreglu Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju vegna drengsins sem lést á Ítalíu Verið að athuga frekari þvingunaraðgerðir Sjálfstæðismönnum brugðið yfir mögulegri frestun landsfundar Lygileg atburðarás í Landsbankanum Rann á snjóruðningstæki og bíllinn óökuhæfur Öryggisógn í Eystrasaltinu og óskiljanlegur „gjörningur“ lögreglu Tveir bílar rákust saman á brúnni við Fossála Veit vel að önnur kjör en laun þurfi að ræða Hætta leitinni í Meradölum Innan marka að kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Súðavíkurhlíð opin á ný Leit við Meradali í snælduvitlausu veðri Búið að opna Holtavörðuheiði á ný Þungar vikur framundan Skilaréttur neytenda ríkari ef varan er keypt á netinu Lögregla hafi hálfpartinn „hrökklast frá“ Hæstiréttur fer beint í búvörulagamálið Spennan magnast fyrir fundi sem óvænt á að fresta Grímuskylda og ósáttir vínsalar Holtavörðuheiði enn lokuð Reyndu að ræna hraðbanka Komu hesti til bjargar úr gjótu Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Áfram töluverð snjóflóðahætta á Vestfjörðum Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Snjóflóðahætta á Vestfjörðum og frumsýning Yermu Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld Sex voru fluttir með þyrlunni Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Sjá meira