„Hann er svolítil blanda af Scholes og Veron,“ sagði Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, hæstánægður með hinn portúgalska Bruno Fernandes sem slegið hefur í gegn á fyrstu vikum sínum hjá enska félaginu.
Fernandes skoraði sitt fyrsta mark fyrir United í dag, úr víti sem hann náði í sjálfur, og átti sinn þátt í hinum tveimur mörkunum í 3-0 sigri á Watford. United keypti þennan sóknarsinnnaða miðjumann fyrir 47 milljónir punda (sú upphæð getur hækkað í 67,6 milljónir punda) frá Sporting Lissabon í janúar.
„Miðað við markaðinn í dag þá held ég að við höfum gert góð kaup. Hann hefur komið inn og staðið sig mjög vel, gefið öllum aukakraft og þannig gert meira en að vera bara nýr leikmaður. Hann hefur líka gert eitthvað fyrir áhorfendurna. Maður sér að stuðningsmennirnir eru vanir svona persónuleika, hugarfari og hæfileikum. Þetta er það sem stuðningsmenn hafa séð hjá mörgum United-leikmönnum í gegnum tíðina,“ sagði Solskjær eftir leikinn í dag.
„Frá fyrsta degi, frá fyrstu mínútu, hefur hann skapað sér sess í hópnum, heimtandi boltann á sinni fyrstu æfingu. Sumir leikmenn þurfa tíma til að komast inn í hlutina en hann var fullur sjálfstrausts frá upphafi,“ sagði Solskjær, og líkti Fernandes svo við tvo fyrrverandi leikmenn United:
„Hann er svolítil blanda af [Paul] Scholes og [Juan Sebastian] Veron, í rauninni. Hann er með skapgerð Verons og marga af hæfileikum hans og Scholes. Hann hefur staðið sig stórkostlega. Hann hefur sýnt hvaða persónuleika hann hefur, að hann er Manchester United-maður sem vill stíga út á Old Trafford, stöðugt vera að fá boltann, vill stjórna ferðinni og hjálpa liðsfélögum sínum. Það var frábært hvernig hann afgreiddi vítaspyrnuna,“ sagði Solskjær.
Solskjær: Fernandes blanda af Scholes og Veron

Tengdar fréttir

Glæsimörk í öruggum sigri United
Bruno Fernandes skoraði sitt fyrsta mark fyrir Manchester United þegar liðið sigraði Watford á heimavelli.

Hefur elskað Man. United síðan hann sá Ronaldo spila með liðinu
Portúgalinn Bruno Fernandes varð í gær leikmaður Manchester United og segist ætla að gera allt til þess að vinna titla með félaginu.

Tók Bruno Fernandes einn leik að komast í lið umferðarinnar hjá BBC
Bruno Fernandes lék sinn fyrsta leik fyrir Manchester United um helgina eftir að hafa gengið í raðir liðsins í síðustu viku frá Sporting Lisbon.

Ronaldo og Nani gefa Fernandes sín bestu meðmæli
Gamlar United-hetjur eru hrifnar af nýjasta leikmanni liðsins.

Bruno Fernandes orðinn leikmaður United
Manchester United hefur staðfest félagaskipti Brunos Fernandes.