Kvennakórinn Katla: Ætla að „rífa úr sér hjartað og leggja það á borðið“ Atli Ísleifsson skrifar 18. febrúar 2020 14:00 Af æfingu hjá Kvennakórnum Kötlu. Kvennakórinn Katla „
Við erum að rífa úr okkur hjartað, leggja það á borðið og bjóða fólki að strjúka þeim og klappa með,“ segir Lilja Dögg Gunnarsdóttir, önnur kórstýra Kvennakórsins Kötlu, um fyrirhugaða tónleika kórsins í Tjarnarbíói sem fram fara á laugardaginn. „Við ætlum að bjóða upp á tónlist sem er útsett af okkur kórstýrunum – mér og Hildigunni Einarsdóttur. Þetta er allt saman tónlist sem tengist ástum og uppgjörum. Við erum þarna með Billie Eilish, Kate Bush, Björk, Emilíönu Torrini svo einhverjar séu nefndar,“ segir Lilja. Hún segir að kórinn vinni þetta svolítið eins og leikhús. „Þetta er eins konar kórleikhús. Sviðsetning með hverju lagi, búningaskipti og svo framvegis. Það verða um sextíu konur á sviðinu þarna að gefa allt í þetta.“ Lilja Dögg segir að farið verði allan tilfinningaskalann í algerri gleði og flippi. „Ég myndi ekki segja að þetta væri tregafullt heldur bara alger opnun, gleði, orka og kraftur.“ Af æfingu.Kvennakórinn Katla
Reykjavík Tónlist Mest lesið McConaughey glutraði niður tækifærinu í Titanic Lífið Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Þríbætti tíma kærastans í einni stærstu spyrnukeppni Evrópu Lífið Orðin vön ferðamönnum í garðinum og fagnar komu þeirra Lífið Stjörnulífið: „Þessi ætlar að ríða þessa Verslunarmannahelgina“ Lífið Eftir þrettán ára nám fékk Saga bílpróf Lífið Íhuga að skrifa bók um kaffihúsin á þúsund kílómetra hjólarúnti Lífið Edda og Sverrir hrepptu Gullbjölluna Bíó og sjónvarp Walking Dead-leikkona látin Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira