Dagana 27.-29.febrúar næstkomandi verður bókahátíðin Júlíana hátíð sögu og bóka haldin í Stykkishólmi. Þetta er í áttunda sinn sem hátíðin er haldin en dagskráin einkennist af þátttöku bæjarbúa og gesta í dagskrá. Í fréttatilkynningu segir að hátíðin sé unnin af undirbúningsnefnd kvenna sem allar eigi það sameiginlegt að tengjast Hólminum sterkum böndum.
Viðfangsefni hátíðarinnar í ár er „Hin hliðin fjölbreytileiki lífsins.“ Hátíðin hefst með formlegri opnun á fimmtudagskvöldið í Vatnasafninu. Á föstudeginum verður dagskrá víðs vegar um bæinn. Má þar nefna að í Grunnskóla Stykkishólms mun rithöfundurinn Hildur Knútsdóttir vinna með nemendum eldri deilda að skapandi skrifum. Þá verður sögustund fyrir börnin á leikskólanum. Sýning á myndverkum nemenda yngri deilda Grunnskólans í Stykkishólmi verður í versluninni Skipavík.
Í Bókaverzlun Breiðafjarðar verður boðið upp á sögustund og tónlist í tveimur betri stofum um kvöldin. Þá mun hópur fólks lesa bókina Mánasteinn eftir rithöfundinn Sjón. Á laugardeginum mun Sjón hitta fyrir leshópinn og halda erindi í gömlu kirkjunni í bænum. Þá mun Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur fjalla um maddömu Guðrúnu Sveinbjarnardóttur og eins mun Lilja Sigurðardóttir rithöfundur fjalla um verk sín.
Á laugardagskvöldið verða tónleikar með hljómsveitinni Ylju.
Júlíanahátíðin var valin á lista ásamt fimm öðrum hátíðum hjá Eyrarrósinni sem framúrskarandi menningarviðburður. ,,Við erum afar stolt af þessari viðurkenningu,“ segir Gréta Sigurðardóttir, ein forsvarskvenna í undirbúningsnefnd. Með henni í nefndinni í ár eru einnig Dagbjört Höskuldsdóttir, Nanna Guðmundsdóttir, Sólrún Sigurðardóttir og Þórunn Sigþórsdóttir. Öll vinna við hátíðina er unnin í sjálfboðastarfi.
Nánari upplýsingar um dagskrá má finna á Facebooksíðu hátíðarinnar.