Ísland mætir Ungverjalandi í þriðja og síðasta leik sínum í E-riðli Evrópumótsins í handbolta 2020 í Malmö í dag. Leikurinn hefst klukkan 17:15 og verður í beinni textalýsingu á Vísi.
Ísland er með fjögur stig á toppi riðilsins og er öruggt með sæti í milliriðli II. Íslendingar þurfa þó að vinna Ungverja til að taka tvö stig með sér.
Í tilefni af leiknum gegn Ungverjalandi í dag hefur Vísir rifjað upp fjóra eftirminnilegustu leiki Íslendinga og Ungverja á stórmótum í gegnum tíðina.

Íslenska vörnin skellti í lás í fyrri hálfleiknum gegn Ungverjalandi í þriðja leik sínum í A-riðli á Ólympíuleikunum í Barcelona 1992.
Ísland spilaði frábæran varnarleik í fyrri hálfleik og Ungverjaland skoraði aðeins þrjú mörk. Íslendingar buðu reyndar sjálfir ekki upp á neina flugeldasýningu í sókninni og skoruðu bara átta mörk.
Leikurinn opnaðist aðeins í seinni hálfleik og Íslendingar juku muninn, náðu mest níu marka forskoti og unnu á endanum sex marka sigur, 22-16. Þetta var fyrsti sigur Íslands á Ungverjalandi á stórmóti.
Guðmundur Hrafnkelsson átti stórleik í íslenska markinu og varði 20 skot, eða rúmlega helming þeirra skota sem hann fékk á sig.
Ísland endaði í 2. sæti A-riðils með sjö stig af tíu mögulegum. Íslendingar enduðu að lokum í 4. sæti sem var besti árangur þeirra á Ólympíuleikum.
Mörk Íslands: Valdimar Grímsson 6/4, Héðinn Gilsson 4, Geir Sveinsson 4, Sigurður Bjarnason 3, Birgir Sigurðsson 2, Einar Gunnar Sigurðsson 2, Jakob Sigurðsson 1.

Íslendingar héldu HM 1995 og ætluðu sér stóra hluti á heimavelli. Og byrjunin lofaði góðu.
Ísland vann örugga sigra á Bandaríkjunum í Túnis í fyrstu tveimur leikjum sínum á HM og mætti svo Ungverjalandi í þeim þriðja.
Ungverjar skoruðu fyrstu tvö mörk leiksins en það var í eina skiptið sem þeir voru með forystuna. Íslendingar unnu sig jafnt og þétt inn í leikinn og leiddu með tveimur mörkum í hálfleik, 11-9. Ísland var áfram með frumkvæðið í seinni hálfleik en Ungverjaland minnkaði muninn í 21-20 þegar lítið var eftir.
Þá tók Valdimar Grímsson til sinna ráða og kláraði leikinn. Hann var markahæstur Íslendinga með níu mörk. Ísland vann á endanum þriggja marka sigur, 23-20, en þetta var í fyrsta sinn sem Ísland vann fyrstu þrjá leiki sína á HM.
Svo fór allt í steik, Ísland tapaði fjórum síðustu leikjum sínum á HM og endaði í 14. sæti sem þóttu mikil vonbrigði.
Eftir HM 1995 hætti Þorbergur Aðalsteinsson sem landsliðsþjálfari og við starfi hans tók Þorbjörn Jensson.
Mörk Íslands: Valdimar Grímsson 9/5, Júlíus Jónasson 5, Geir Sveinsson 4, Sigurður Sveinsson 3, Dagur Sigurðsson 1, Jón Kristjánsson 1.

Ísland hefur aldrei farið jafn vel af stað á stórmóti og á HM 2011. Ísland vann alla fimm leiki sína í B-riðli með samtals 38 mörkum og leit hrikalega vel út.
Í fyrsta leiknum á HM 2011 sigraði Ísland Ungverjaland með sex marka mun, 32-26. Staðan í hálfleik var 14-11, Íslendingum í vil.
Aron Pálmarsson fór mikinn í seinni hálfleik og skoraði þá sjö af átta mörkum sínum. Alexander Petersson skoraði fimm mörk og var stórgóður í vörninni.
„Vörnin var frábær hjá okkur í þessum leik og ég var sáttur við hana eiginlega allan tímann,“ sagði landsliðsþjálfarinn Guðmundur Guðmundsson við Fréttablaðið eftir leikinn.
Eftir frábæra byrjun á mótinu fór loftið úr íslensku blöðrunni og Íslendingar töpuðu síðustu fjórum leikjum sínum á mótinu. Niðurstaðan var samt 6. sæti sem er næstbesti árangur Íslands á HM.
Mörk Íslands: Aron Pálmarsson 8, Alexander Petersson 5, Guðjón Valur Sigurðsson 4, Arnór Atlason 4, Ólafur Stefánsson 4/1, Róbert Gunnarsson 3, Ingimundur Ingimundarson 2, Þórir Ólafsson 1, Snorri Steinn Guðjónsson 1/1.

Leikurinn sem má ekki tala um. Voldemortinn í sögu íslenska handboltalandsliðsins. Það er of sárt að rifja hann upp. Pass.
Mörk Íslands: Guðjón Valur Sigurðsson 8, Aron Pálmarsson 6, Róbert Gunnarsson 5, Arnór Atlason 4, Ólafur Stefánsson 3.