Það verður nóg að gera hjá Liverpool liðinu síðustu mánuði tímabilsins enda liðið líklegt til afreka bæði í ensku úrvalsdeildinni og Meistaradeildinni.
Knattspyrnustjórinn Jürgen Klopp hefur verið að reyna að stýra álaginu á liðinu sem var ekki auðvelt í öllu leikjaálaginu í jólamánuðinum þar sem heimsmeistarakeppni félagsliða og ferðalag til Katar bættist ofan á alla aðra leiki.
Framundan er hins vegar smá frí nú þegar enska úrvalsdeildinni tekur sér í fyrsta sinn svokallað vetrarhlé þar sem liðin fá tækifæri til að hlaða batteríin fyrir lokakafla tímabilsins.
Flest liðanna ætla sér að komast í sól og hita sunnar á hnettinum og fara með leikmenn sína í stuttar æfingabúðir en Klopp hefur önnur plön samkvæmt frétt í Evening Standard.
#LFC not heading on their usual warm-weather training camp in February despite the introduction of a winter break. Instead, Jurgen Klopp will give his players a well-deserved week off - if they avoid an FA Cup replay against Shrewsbury, that is.https://t.co/PwcxbXjM6W
— David Lynch (@LynchStandard) January 16, 2020
Liverpool fær tveggja vikna frí eftir leik sinn á móti Southampton á Anfield 1. febrúar næstkomandi. Næsti deildarleikur er síðan ekki fyrr en á móti Norwich City 15. febrúar.
Klopp hefur verið vanur að fara með Liverpool liðið í stuttar æfingaferðir til Spánar síðustu ár en nú vill hann fara aðra leið. Liverpool fór til La Manga árið 2017 en hefur undanfarin tvö ár æft á Marbella.
Klopp ætlar samkvæmt heimildum Evening Standard að gefa sínum leikmönnum eina viku í frí frá æfingum þar sem þá fá tækifæri til að safna orku og ferskleika fyrir framhaldið. Þetta eru verðlaun fyrir frábæra framgöngu liðsins til þessa á tímabilinu.
Það gæti reyndar eitt haft áhrif á þetta tveggja vikna frí. Fari svo að Liverpool þurfi að spila aukaleik á móti Shrewsbury Town í enska bikarnum þá fer sá leikur fram 5. febrúar og styttir því um leið þetta vetrarfrí Liverpool manna.