Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boðuðu til upplýsingafundar fyrir fjölmiðla klukkan 14 í dag í húsakynnum embættis landlæknis í Katrínartúni.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Alma D. Möller landlæknir fóru yfir stöðu mála varðandi framgang kórónveirufaraldursins hér á landi, ásamt Víði Reynissyni, yfirlögregluþjóni hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, og Óskari Reykdalssyni, forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Fundurinn var sýndur í beinni útsendingu hér á Vísi og á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi. Upptöku af fundinum má horfa á í spilaranum hér að ofan og þá má nálgast fundinn í beinni textalýsingu hér fyrir neðan.