Tveir bíða eftir mótefnamælingu Kristín Ólafsdóttir skrifar 21. júlí 2020 11:16 21 sýni var greint á sýkla- og veirufræðideild Landspítala í gær. Þorkell Þorkelsson/Landspítali háskólasjúkrahús
Tveir greindust með kórónuveiruna við landamæraskimun síðasta sólarhringinn en bíða báðir eftir mótefnamælingu. Virk smit á landinu eru átta og helst fjöldinn óbreyttur milli daga. 79 eru í sóttkví. Alls voru 1.629 sýni tekin síðasta sólarhringinn, þar af var 21 greint á sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Talsvert fleiri sýni voru þannig tekin síðasta sólarhringinn en sólarhringinn þar áður, fyrsta daginn sem skimað var án aðkomu Íslenskrar erfðagreiningar. Ekki eru lengur talin með í heildarfjölda smita þau tilvik landamæraskimunar þar sem mótefni hafa mælst gegn veirunni. Jákvæðu sýnin í gær eru þannig ekki komin inn í tölur yfir staðfest smit en það breytist ef smitin reynast virk. Í dag mælist nýgengi smita, þ.e. virk smit síðastliðna 14 daga á 100 þúsund íbúa, 1,91. Boðað hefur verið til upplýsingafundar klukkan 14 vegna kórónuveirunnar í húsakynnum landlæknisembættisins í Katrínartúni. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Páll Matthíasson forstjóri Landspítala fara yfir stöðu mála varðandi opnun landamæra, sýnatöku og framgang faraldursins hér á landi ásamt Víði Reynissyni, yfirlögregluþjóni. Fundurinn verður í beinni útsendingu hér á Vísi.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Fá engar bætur fyrir stolin bíl Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn Innlent Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Innlent Fleiri fréttir Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Sjá meira