Innlent

Vonskuveður á vestanverðu landinu

Sylvía Hall og Telma Tómasson skrifa
Djúp lægð gengur nú yfir landið.
Djúp lægð gengur nú yfir landið. Veðurstofa Íslands

Gul veðurviðvörun tekur gildi á Vestfjörðum klukkan eitt í dag, en einnig er veðurútlit slæmt og viðvaranir fyrir Breiðafjörð, Strandir og norðurland vestra og Miðhálendið. Á Vestfjörðum er útlit fyrir norðaustan 13-20 metra á sekúndu með talsverðri eða mikilli rigningu.

Varað er við snörpum vindhviðum við fjöll sem eru varasamar fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Þá má búast má við auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum sem eykur hættu á flóðum og skriðuföllum, eftir því sem fram kemur á vef Veðurstofu Íslands.

Einnig er aukið álag á fráveitukerfi og er fólk hvatt til að huga að niðurföllum til að forðast vatnstjón. Þá er útivistarfólki bent á að slæmt veður er til útivistar og ferðalangar beðnir um að gæta að aðstæðum.

Á veðurvaktarsíðunni Bliku segir að búast megi við hreti um hásumar og veðrið hljóti að teljast óvenjulegt fyrir þennan árstíma. Lægðinni fylgi óvenju mikil úrkoma og komi hugsanlega til með að snjóa í fjöll á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum þegar snýst í norðanáttina. Hretið nái hugsanlega einnig til Norðurlands, einkum seint á morgun og laugardag, eftir því sem fram kemur á Blika.is

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag:

Norðan 13-20 m/s, en mun hægari um landið A-vert. Talsverð rigning N-lands og slydda eða snjókoma til fjalla NV-til á landinu, en úrkomuminna sunnan heiða. Hiti 5 til 14 stig, hlýjast syðst.

Á laugardag:

Norðan 10-18 með kalsarigningu á N-verðu landinu og slyddu eða snjókomu til fjalla, en þurrt og bjart veður S-lands. Hiti 3 til 14 stig, mildast á SA-landi.

Á sunnudag:

Minnkandi norðanátt. Léttskýjað S-lands og dregur úr vætu N-til á landinu. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast á S- og V-landi.

Á mánudag og þriðjudag:

Vestlæg eða breytileg átt, skýjað með köflum og líkur á síðdegisskúrum. Hiti 8 til 15 stig.

Á miðvikudag:

Útlit fyrir fremur hæga breytilega átt, dálitlar skúrir og svipaðan hita.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×